Byggðastofnun: Rósa Gísladóttir sigrar samkeppni um listskreytingu
Samkeppni um listskreytingu í nýbyggingu Byggðastofnunar er lokið. Dómnefnd valdi verk Rósu Gísladóttur, Eldflaugin og demanturinn sigurvegara. Í umsögn dómnefndar segir:
Eldflaugin og Demanturinn eru áhrifarík og fagurfræðilega áhugaverð í rýminu Hugmyndin er heildstæð og tengist starfsemi Byggðastofnunar með skemmtilegri vísun í ferðalag og framþróun sem Eldflaugin táknar og áfangastað slíks ferðalags sem demanturinn táknar Verkin eru þrívíð og fjörug og taka á móti þeim sem inn í rýmið koma með form og litagleði Þau vekja áhuga, athygli og forvitni.
Dómnefnd skipuðu eftirtaldir aðilar:
Árni Ragnarsson, arkitekt, tilnefndur af Byggðastofnun, formaður dómnefndar, Ásdís Spanó myndlistarmaður, tilnefnd af SÍM, Baldur Ó Svavarsson, arkitekt nýbyggingar Byggðastofnunar, tilnefndur af Byggðastofnun. Ritari dómnefndar og verkefnastjóri var Sunna Dóra Sigurjónsdóttir, verkefnastjóri hjá Framkvæmdasýslu ríkisins.
Umsögn dómnefndar má sjá í meðfylgjandi skjali: