2006


22. desember 2006

Gleðileg jól!

Framkvæmdasýsla ríkisins óskar viðskiptavinum sínum um land allt gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á komandi ári.

Nánar

15. desember 2006

Viðbygging við heilbrigðistofnunina á Siglufirði boðin út

Í útboði er nú framkvæmd við nýja viðbyggingu við Heilbrigðisstofnunina Siglufirði, útboð B.

Nánar

1. desember 2006

Samtök opinberra verkkaupa (SOV) stofnuð

Þann 1. desember 2006 var haldinn stofnfundur Samtaka opinberra verkkaupa, SOV, sem verður samstarfsvettvangur opinberra aðila á Íslandi sem stunda kaup á verkum og þjónustu þeim tengdum. Aðild að samtökunum geta átt ríkisstofnanir og sveitarfélög.

Nánar

24. nóvember 2006

Öryggisrannsóknarstofa byggð að Keldum.

Hafin er bygging öryggisrannsóknarstofu við Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum í Reykjavík.

Nánar

20. nóvember 2006

Viðbygging við sýsluskrifstofur og lögreglustöð á Eskifirði

Útboð hefur verið auglýst þar sem óskað er eftir tilboðum í viðbyggingu við skrifstofuhús Sýslumannsins á Eskifirði, um 170 fermetrar, og endurbætur á núverandi húsi.

Nánar

9. nóvember 2006

Ný bygging öldrunarheimilis á Akureyri vígð

Í dag fer fram vígsla viðbyggingar við hjúkrunar- og dvalarheimilið Hlíð á Akureyri. Þessi bygging er um fjögur þúsund fermetrar að stærð og markar tímamót í öldrunarþjónustu á Akureyri.

Nánar

3. nóvember 2006

Gæðastjórnun við mannvirkjagerð

Í nýútkomnu tölublaði tímaritsins Verktækni er grein sem ber heitið Gæðastjórnun við mannvirkjagerð eftir Óskar Valdimarsson, byggingarverkfræðing, forstjóra Framkvæmdasýslu ríkisins.

Nánar

26. október 2006

Landbúnaðarstofnun flytur í nýtt leiguhúsnæði

Landbúnaðarstofnun hefur tekið í notkun húsnæði að Austurvegi 64, Selfossi, þar sem innréttað hefur verið fyrir stofnunina í nýju glæsilegu húsi sem tekið var á leigu.

Nánar

26. október 2006

Kynningar um fyrirhugaðar byggingar Landspítala- háskólasjúkrahúss

Á kynningarfundi um væntanlegt deiliskipulag á lóð Landspítala-háskólasjúkrahús við Hringbraut, sem haldinn var í Ráðhúsinu í Reykjavík 15. júni 2006, var staða verkefnisins kynnt. Sóttu fundinn á sjötta tug gesta.

Nánar

19. október 2006

Námstefnan Aðgengismál og endurbætur eldra húsnæðis

Norrænn Byggingardagur, NBD, á Íslandi, í samvinnu við félagsbústaði hf, umhverfisráðuneytið og íbúðalánasjóð kynna námsstefnu um Aðgengismál og endurbætur eldra húsnæðis föstudaginn 27. október kl. 8:30-12:30 í Norræna húsinu.

Nánar

12. október 2006

Byggingadagar Snertils 12. og 13. október 2006

Snertill býður til Byggingardaga og kynnir hönnunarkerfi frá Autodesk og danska BIM (Bulding Informtion Model) líkanið fimmtudaginn og föstudaginn 12. og 13. október 2006 í sal Læknafélags Íslands á þriðju hæð að Hlíðasmára 8 í Kópavogi.

Nánar

6. október 2006

Sýning Lagnafélagsins opnuð í dag

Í tilefni af 20 ára afmæli Lagnafélags Íslands verður opnuð í dag, föstudaginn 6. október kl. 16:00 sýningin Lagnakerfi í nútíð og framtíð í Vetrargarðinum Smáralind.

Nánar

27. september 2006

Ný heilsugæslustöð á Skagaströnd tekin í notkun

Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, tók formlega í notkun heilsugæslustöð á Skagaströnd þann 22. september 2006 við hátíðlega athöfn.

Nánar

22. september 2006

Hafin framkvæmd við 3. hæð D-álmu Heilbrigðisstofnunnar Suðurnesja

Þann 28. ágúst 2006 undirrituðu heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra og fulltrúi FB Festingar ehf. verksamning um innréttingu skurðstofa í D-álmu Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.

Nánar

15. september 2006

Evrópskt asbestátak 2006

Vinnueftirlitið hefur sent dreifibréf til fjölda aðila á byggingarsviði til að vekja athygli á því að á síðari hluta ársins 2006 er í gangi sérstakt evrópskt átak til fræðslu um asbest.

Nánar

8. september 2006

Unnið við uppsteypu sökkla á Háskólatorgi

Unnið er nú að því að steypa sökkla við byggingar Háskóla Íslands, Háskólatorg I og II, en jarðvinna hófst í vor.

Nánar

1. september 2006

Skipulag Landspítala- háskólasjúkrahúss endurskoðað

Skipulag á lóð Landspítala - háskólasjúkrahúss við Hringbraut hefur verið þróað áfram eftir að skipulagssamkeppninni lauk árið 2005.

Nánar

25. ágúst 2006

Endurinnrétting í menntamálaráðuneyti, 3. hæð

Unnið var að endurinnréttingu í húsnæði menntamálaráðuneytisins Sölvhólsgötu 4.

Nánar

24. ágúst 2006

Framkvæmdum lokið við heilsugæslustöð á Skagaströnd

Byggingu heilsugæslu á Skagaströnd er lokið og fór lokaúttekt fram föstudaginn 11. ágúst 2006. Byggingin stendur austan við hús dvalarheimilisins Sæborgar og tengist því með tengigangi. Húsið er 267 m² timburhús, byggt á steyptri grunnplötu með sökkulbitum. Kemur þessi aðstaða í stað þeirrar sem heilsugæslan hefur haft til afnota á Skagaströnd og mun hýsa skrifstofu læknis og hjúkrunarfræðings ásamt tilheyrandi aðgerða- og rannsóknarstofu, sjúkraþjálfun, auk móttöku og biðstofu.

Nánar

9. ágúst 2006

Vinna við viðgerðir á vesturvegg Alþingishússins standa yfir

Framkvæmdir við utanhússviðgerðirnar voru boðnar út árið 2003.

Nánar

9. júlí 2006

Unnið að innréttingum í sambýli við Geislatún á Akureyri

Uppsteypu sambýlisins við Geislatún 1 á Akureyri er lokið og í júlí var unnið að múrverki og smíði innréttinga.

Nánar

6. júlí 2006

Deiliskipulag Landspítala - háskólasjúkahúss kynnt

Á kynningarfundi um væntanlegt deiliskipulag á lóð Landspítala - háskólasjúkrahúss við Hringbraut, sem haldinn var í Ráðhúsinu í Reykjavík 15. júni 2006, var staða verkefnisins kynnt. Sóttu fundinn á sjötta tug gesta.

Nánar

5. júlí 2006

Birkimörk sambýli - unnið við múrverk

Við sambýlið að Birkimörk 21-27 í Hveragerði er nú unnið að einangrun hússins að utan

Nánar

9. júní 2006

Staða skipulags Landspítala- háskólasjúkrahúss kynnt á fundi

Opinn fundur um stöðu undirbúnings og deiliskipulag Framkvæmdanefnd um byggingu nýs Landspítala-háskólasjúkrahúss og skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkur boða til kynningar- og umræðufundar um undirbúning og stöðu deiliskipulags nýs Háskólasjúkrahúss við Hringbraut.

Nánar

2. júní 2006

Boðnar út innréttingar við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

Í útboði eru nú innréttingar 3. hæðar í D álmu Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja

Nánar

29. maí 2006

Utanhússviðgerðir Þjóðleikhúss í útboði

Á árunum 1989 til 1991 var unnið að umfangsmiklum endurbótum á Þjóðleikhúsinu og að henni lokinni varð hlé á framkvæmdum en ýmsum verkþáttum var þá ólokið

Nánar

19. maí 2006

Kúluplötur - ný gerð af steyptum plötum

Á byggingarvörumarkaði koma stundum áhugaverðar nýjungar og á síðastliðnu ári hófst hérlendis framleiðsla á svokölluðum kúluplötum

Nánar

11. maí 2006

Sprengivinna hafin við Háskólatorg

Framkvæmdir við jarðvinnu við byggingar Háskóla Íslands standa yfir, bæði við Háskólatorg I og II.

Nánar

5. maí 2006

Sambýli við Birkimörk í Hvergerði uppsteypt

Framkvæmdir standa yfir við nýbyggingu sambýlis við Birkimörk 21-27 í Hveragerði

Nánar

3. maí 2006

Frá ráðstefnunni Vottað Ísland?

Ráðstefnan Vottað Ísland? sem haldin var á Grand Hotel 27. apríl síðast liðinn tókst vel og mættu um 100 manns á ráðstefnuna

Nánar

24. apríl 2006

Ráðstefna um vottaða gæðastjórnun verkfræði- og arkitektafyrirtækja

Boðað er til ráðstefnunnar Vottað Ísland? Hagur verkfræði- og arkitektafyrirtækja. Það er fyrirtækið Focal Software & Consulting sem stendur fyrir ráðstefnunni með þátttöku opinberra aðila, verkkaupa, hönnuða og ráðgjafa.

Nánar

19. apríl 2006

Sendiherrabústaður í Berlín tekinn í notkun

Utanríkisráðherra, Geir H. Haarde, vígði nýjan sendiherrabústað í Berlín þann 27. mars 2006

Nánar

6. apríl 2006

Fyrsta skóflustunga tekin að Háskólatorgi

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Björgólfur Guðmundsson, formaður stjórnar Háskólasjóðs h/f Eimskipafélags Íslands, tóku fyrstu skóflustungu að Háskólatorgi

Nánar

31. mars 2006

Sambýli á Akureyri uppsteypt

Framkvæmdir standa yfir við nýbyggingu sambýlis við Geislatún 1 á Akureyri

Nánar

30. mars 2006

Rafrænar verklýsingar í byggingariðnaði

Morgunverðarfundur Rb um Rafrænar verklýsingar í byggingariðnaði var handinn þriðjudaginn, 30. mars 2004

Nánar

24. mars 2006

Sýningin Verk og vit vel sótt

Sýningingin Verk og vit var haldin dagana 16. - 19. mars 2006 í nýju íþrótta- og sýningahöllinni í Laugardal

Nánar

17. mars 2006

Steypt upp viðbygging við Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupsstað

Við Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað standa yfir endurbætur eldri hluta sjúkrahússins

Nánar

10. mars 2006

Lokið innréttingaáfanga heilsugæslu á Akureyri

Framkvæmdum við endurinnréttingu 3. hæðar Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri er lokið og var hæðin afhent heilsugæslustöðinni í gær

Nánar

6. mars 2006

Nýtt bréfsímanúmer FSR

VINSAMLEGAST ATHUGIÐ 569 8901

Nánar

3. mars 2006

Grensásvegur 9 tekinn í notkun

Grensásvegur 9 hefur verið tekinn í notkun eftir gagngerar endurbætur og hefur Orkustofnun fært þangað starfsemi sína að hluta

Nánar

24. febrúar 2006

Vottun hjá Verkefnastjórnunar- félaginu

Verkefnastjórnunarfélag Íslands (sjá www.vsf.is) hefur unnið að því í samstarfi við Alþjóðasamtök verkefnastjórnunarfélaga, IPMA, að efla verkefnastjórnun sem nýtist vel flestum sviðum, meðal annars á sviði framkvæmda

Nánar

17. febrúar 2006

Landspitali - Univerity of Iceland

Kynning FSR á skipulagi Landspítala-háskólsjúkrahúsi við Hringbraut í febrúar 2006.

Nánar

10. febrúar 2006

Bygging heilsugæslu á Skagaströnd að rísa

Sökklar og plata nýbyggingar Heilsugæslunnar á Skagaströnd voru steyptir í byrjun febrúar

Nánar

2. febrúar 2006

Landspítali - háskólasjúkrahús. Upphafsfundur 1. febrúar 2006

Undirbúningur fyrir hönnun nýs Landspítala - háskólasjúkrahúss hófst fyrir alvöru í dag með fundi framkvæmdanefndar nýbyggingar Landspítala

Nánar

30. janúar 2006

Frá Útboðsþingi

Árlegt Útboðsþing Samtaka iðnaðarins og Félags vinnuvélaeigenda var haldið síðastliðinn föstudag, 27. janúar, á Grand Hótel Reykjavík.

Nánar

30. janúar 2006

Útboðs- og samningsskilmálar

Á heimasíðu FSR er staðalform útboðs- og samningsskilmála

Nánar

27. janúar 2006

Útboðsþing 2006 haldið í dag

Árlegt Útboðsþing Samtaka iðnaðarins og Félags vinnuvélaeigenda verður haldið föstudaginn 17. janúar 2006 klukkam 13.00 á Grand Hótel Reykjavík.

Nánar

20. janúar 2006

Heilsugæslustöð Glæsibæ opnuð

Í gær, fimmtudaginn 19. janúar 2006 klukkan 16, opnaði heilbrigðisráðherra, Jón Kristjánsson, nýja heilsugæslustöð í Glæsibæ, Álfheimum 74, í Reykjavík.

Nánar

13. janúar 2006

Innréttingar Fjórðungssjúkrahúss Akureyrar 1.-2. hæð í útboði

Framkvæmdir við innréttingar 1. og 2. hæðar suðurálmu Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri (FSA) eru í útboði

Nánar

6. janúar 2006

Nýtt listaverk í Kennaraháskólanum

Í Hamri, nýbyggingu Kennaraháskóla Íslands, hefur nýju listaverki verið komið fyrir í miðrýminu

Nánar

Aðgengisvottun

Aðgengisvottun Forgangur 1 og 2



Aðalvalmynd


Aukaval


Aukaval

Borgartúni 7A - 105 Reykjavík - Sími 569 8900 - Bréfsimi 569 8901


Leit

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi