Eftir mánuðum


26. september 2008

Innleiðing BIM á Íslandi

Í undirbúningi er að innleiða BIM (Building Information Model) á Íslandi og hefur verið komið á fót samstarfi hagsmunaaðila í þeim tilgangi og þar eru meðal annarra Framkvæmdasýsla ríkisins , Reykjavíkurborg - Framkvæmdasvið, Orkuveita Reykjavíkur, Nýsköpunarmiðstöð, Samtök iðnaðarins og Félag sjálfstætt starfandi arkitekta.

Nánar

19. september 2008

Uppsláttur steypumóta við Höfðatorg

Í verklegum framkvæmdum er mikilvægt að nýta vel byggingartæknina og lykilatriði er að nota hagkvæm og örugg steypumót og vinnupalla á verkstað. Háhýsið við Höfðatorg dregur til sín athygli, ekki síst uppsláttur steypumóta af vandaðri gerð. Voru mótin skoðuð nánar og leitað upplýsinga um þau.

Nánar

15. september 2008

Þyrla flytur stoðvirki til snjóflóðavarna í Ólafsvík

Framkvæmdir við snjóflóðavarnir í Ólafsvík eru komnar vel á veg og nú er unnið við stoðvirki í Tvísteinahlíð ofan við byggðina í Ólafsvík. Þann 10. september 2008 flutti þyrla Landhelgisgæslunnar röð stálgrinda af lagersvæði við heilsugæsluna á uppsetningarstað í hlíðinni.

Nánar

9. september 2008

Ný Barna- og unglingageðdeild tekin í notkun

Lokið er framkvæmdum við göngudeild Barna- og unglingageðdeildar Landspítalans (BUGL) við Dalbraut 12 í Reykjavík. Byggingin verður vígð þriðjudaginn 9. september 2008 þegar Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra tekur húsið formlega í notkun og verður opin almenningi til skoðunar miðvikudaginn 10. september klukkan 14 - 16.

Nánar

5. september 2008

Framkvæmdir við hjúkrunaríbúðir í Kópavogi að hefjast

Framkvæmdir við byggingu hjúkrunaríbúða við Boðaþing í Kópavogi eru að hefjast. Um er að ræða tvær tveggja hæða álmur við Boðaþing 5 og 7, alls 44 íbúðir með tilheyrandi stoðrýmum og starfsmannarýmum.

Nánar

Aðgengisvottun

Aðgengisvottun Forgangur 1 og 2



Aðalvalmynd


Aukaval


Aukaval

Borgartúni 7A - 105 Reykjavík - Sími 569 8900 - Bréfsimi 569 8901


Leit

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi