Atburðir Verkefnastjórnunarfélags Íslands


Atburðir Verkefnastjórnunarfélags Íslands (VSF)

Meðal atburða á vegum VSF eru meðal annars kynningarfundir um vottun verkefnastjóra, aðalfundir og morgunverðarfundir.

Á árinu 2010 er margt áhugavert á vegum félagsins, sjá Viðburðir árið 2010 meða annars Haustráðstefna VSF.

Sjá vef Verkefnastjórnunarfélagsins.


Atburðir Alþjóðasambands verkefnastjórnunarfélaga (IPMA)

Á árinu 2010 eru ýmsir atburðir í alþjóðlegu samstarfi, sjá Viðburðir árið 2010.

Á árinu 2009 var haldin alþjóðleg ráðstefna verkefnastjórnunarfélaga í Finnlandi dagana 15. - 17. júní 2009, IMPA World Congress 2009.

Auk annarra atburða hefur VSF haldið atburði og tekið þátt í atburðum í tengslum við IMPA, Alþjóðasamband verkefnastjórnunarfélaga. Meðal atburða þessara samtaka eru árlegar ráðstefnur, svo sem IPMA World Congress 2007 sem var haldinn var í Kraká í Póllandi og ráðstefnan í Róm 2008.

Stofnuð voru 15. janúar 2007 Young Crew á Íslandi sem er hópur ætlaður fólki á aldrinum 20-35 ára sem hefur áhuga á verkefnastjórnun en sambærilegir hópar eru í ýmsum öðrum löndum og starfa þeir innan alþjóða verkefnastjórnunarsamtakanna IPMA.

Ráðstefna IPMA undir heitinu Project Manangement to Run var haldin 9.-11. nóvember 2007 í Róm, sjá kynningu á ensku. IPMA World Congress 2008.


Atburðir Samstarfs norrænna verkefnastjórnunarfélaga (Nordnet)

Á árinu 2008 var haldin norræn verkefnastjóraráðstefna, NORDNET - / nordisk prosjektlederkonferanse í Osló dagana 18. til 19. september 2008.

Á árinu 2007 er helsti atburður Nordnet ráðstefnan Verkefni í voða, Projects Under Risk, sem er á vegum Verkefnastjórnunarfélags Íslands (VSF) í samvinnu við Nordnet dagana 26.-28. september 2007 á Hotel Nordica í Reykjavík, þar sem fjallað er um áhættu í verkefnum frá mörgum sjónarhornum. Áhætta er mikilvægt málefni í verkefnastjórnun og gegnir lykilhlutverki í verkefnum í heimi fjármála, tækni og framkvæmda hjá einkaðailum sem og hjá hinu opinbera.

Ráðstefnan Projektforum06 / Nordnet 2006 var haldin í Stokkhólmi 15.-17. október 2006. Yfirskrift ráðstefnunnar var International Project Management performed by Nordic Project Professionals.

Sjá nánar á vef VSF




Aðalvalmynd


Aukaval


Aukaval

Borgartúni 7A - 105 Reykjavík - Sími 569 8900 - Bréfsimi 569 8901


Leit

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi