Ráðstefnur og fundir


Fyrirlestur um verk Högnu Sigurðardóttur arkitekts. Athugið: Haldinn aftur 6. febrúar 2010 klukkan 14.00. 12. janúar 2010

Fyrirlestur um verk Högnu Sigurðardóttur arkitekts. Athugið: Haldinn aftur 6. febrúar 2010 klukkan 14.00.

Fyrirlestur um verk Högnu Sigurðardóttur arkitekts verður haldinn 12. janúar 2010 klukkan 20.00 á Kjarvalsstöðum í tengslum við sýninguna Högna Sigurðardóttir – Efni og andi í byggingarlist. Fyrirlesari er Pétur H Ármannsson arkitekt.

Högna Sigurðardóttir er vel þekkt sem frumkvöðull á sviði byggingarlistar á Íslandi. Auk þess að vera fyrst kvenna til að starfa sem arkitekt hérlendis hefur hún haft mikil áhrif á þróun íslenskrar byggingarlistar. Meðal slíkra verka er íbúðarhús sem hún teiknaði að Bakkaflöt í Garðabæ sem valið var sem ein af 100 merkustu byggingum 20.aldarinnar í Evrópu. Högna hefur búið og starfað í Frakklandi allt frá námsárunum. Henni hefur hlotnast fjöldi alþjóðlegra viðurkenninga fyrir verk sín og var árið 2008 kosin heiðursfélagi Arkitektafélags Íslands.

Á Kjarvalsstöðum var opnuð sýningin Högna Sigurðardóttir - Efni og andi í byggingarlist 7. nóvember 2009 og haldið var málþing um verk hennar 14. nóvember 2009. Í tengslum við sýninguna er gefin út ítarleg sýningarskrá um verk Högnu.

Guja Dögg Hauksdóttir heldur sýningarstjóraspjall laugardaginn 23. janúar 2010 klukkan 15.00 á Kjarvalsstöðum.

Sýningunni lýkur 31. janúar 2010.

Nánar er fjallað um sýninguna Högna Sigurðardóttir – Efni og andi í byggingarlist á vef Listasafns Reykjavíkur.


Sjá fleiri ráðstefnur og fundi »  |  «  Til baka

Aðgengisvottun

Aðgengisvottun Forgangur 1 og 2



Aðalvalmynd


Aukaval


Aukaval

Borgartúni 7A - 105 Reykjavík - Sími 569 8900 - Bréfsimi 569 8901


Leit

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi