Snjóflóðavarnir í Ólafsvík, uppsetning stoðvirkja


Snjóflóðavarnir  í Ólafsvík, uppsetning stoðvirkja

 Verkefniskynning

Verkefnisnúmer:  633 1782
Síðast uppfært 25. 9. 2009

Framkvæmdir við snjóflóðavarnir í Ólafsvík eru komnar vel á veg og nú er unnið við stoðvirki í Tvísteinahlíð ofan við byggðina í Ólafsvík. Þann 5. september 2008 flutti þyrla Landhelgisgæslunnar stálgrindur af lagersvæði við heilsugæsluna á uppsetningarstað í hlíðinni. Var grindunum komið fyrir í röð sem er sú fyrsta sem sett er upp af þremur röðum.

Það er vandasamt verk að koma stoðvirkjunum fyrir en flutningur með þyrlu auðveldar mjög verkið. Aðstæður eru erfiðar og hættulegar í brattri hlíðinni og staðsetning til festingar krefst um 10mm nákvæmni. Vel tókst til með uppsetninguna, þökk sé samhentum mannskap á staðnum og þyrluahöfninni.

Fleiri myndir eru neðst á síðunni.

Verkaupi var Snæfellsbær og Ofanflóðasjóður á vegum umhverfisráðuneytis. Umsjón með verkefninu hefur FSR og er Guðmundur Pálsson verkefnisstjóri hjá FSR. Verkhönnun vegna sjóflóðavarnanna annaðist Verkfræðistofa Siglufjarðar sf. en vinnsla smíðateikninga var hluti af fyrra útboði, smíði stoðvirkja. Verktaki við uppsetningu stoðvirkja er Zoran Radetic.

Frumathugun

Frumathugun vegna Snjóflóðavarna í Ólafsvík (verkefnið var í fyrstu nefnt Snjó- og krapaflóðavarnir í Ólafsvík) var unnin af Orion Ráðgjöf ehf.

Ákveðið var að bjóða framkvæmdirnar út í áföngum og að 2. áfangi yrði uppsetning stoðvirkja. Áður hafa verið sett upp snjóflóðnet í hlíðina en ný stálgrindarstoðvirki verða sett upp í stað þeirra.

Áætlunargerð

Unnið var að hönnun útboðsgagna í áföngum og annast það Verkfræðistofa Siglufjarðar sf. Tengiliður við stofunna er Þorsteinn Jóhannesson. Hönnun stoðvirkja var hluti af smíðaútboðinu.

Verkefnisstjóri FSR á stigi áætlunargerðar var í fyrstu Sigurjón Sigurjónsson, síðan Þráinn Sigurðsson og loks Sigurður Hlöðversson. Hönnunargögn Verkfræðistofu Siglufjarðar sf. vegna útboðs á smíði stoðvirkja fyrst lögð fram. Um er að ræða stálgrindur, Um er að ræða þrjár raðir af stoðvirkjum, neðsta röðin verður um 60 metra frá byggingu heilsugæslunnar og hinar nokkru ofar. Áætlað var að neðsta röðin yrði 3,5 metra há og 118 metrar að lengd en efri raðirnar verði 4,0 metra háar og hvor um sig um 124 metrar að lengd. Samanlögð lengd er því áætluð 366 metrar. Í hönnunargögnum verkfræðistofunnar voru stoðvirkin ekki hönnuð til fulls en öllum forsendum lýst en verkhönnunin var hluti af útboði smíði stoðvirkja.

Heildarkostnaðaráætlun FSR vegna uppsetningar stoðvirkjanna var, á verðlagi í mars 2007, 47,2 m.kr. (milljónir króna), þar af 40,6 m.kr. vegna verkframkvæmdar að meðtöldum áætluðum verðlagsbreytingum og aukaverkum.

Verkleg framkvæmd

Annar áfangi Snjóflóðavarna í Ólafsvík, uppsetning stoðvirkja, var boðinn út í maí 2007 en tilboð reyndust of há. Endurútboð á uppsetningu stoðvirkjanna var auglýst 24. júní 2007. Þá bárust fimm tilboð í uppsetningu stoðvirkjanna. Tekið var tilboði Viðhalds fasteigna ehf. 8. ágúst 2007. Var það mun hagstæðara en tilboð í fyrra útboði, 48.198.000 krónur eða 22,3% yfir kostnaðaráætlun.

Viðhald fasteigna ehf. hóf framkvæmdir en í mars 2008 sagði verktqakinn sig frá verkinu. Samið var við verktakann Zoran Radetic, sem hafði unnið við verkið sem undirverkteki, um að klára framkvæmdir við uppsetningu stoðvirkjanna. Festum er komið fyrir í hlíðinni áður en stálgrindurnar eru settar upp. Stálgrindurnar eru settar saman að hluta á lagersvæði neðan við heilsugæsluna og fluttar þaðan með þyrlu á uppsetningarstað í Tvísteinahlíð.

Umsjón með verkefninu hefur FSR. Verkefnisstjóri FSr var í fyrstu Ingólfur Aðalbjörnsson og síðan Guðmundur Pálsson.

Gerður var samningur við Landhelgisgæsluna um verkið. Notuð er stærri Puma þyrla LHG. Stoðvirkin eru að meðaltali um 1250 kg og allt að 1550 kg að þyngd. Til undirbúnings er stroffum komið fyrir á stoðvirkjum sem á að flytja. Gert er ráð fyrir að stoðvirkin verði sett upp í hlíðinni í þrem lotum, það er tekin er Fyrsta lota þyrluflutninganna fram 5. september 2008 og tók einn vinnudag. Voru þá flutt stoðvirki línu 2, samtals 21 stykki. Áætlað er að uppsetning á línum 1 og 3 verði lokið í nóvember 2008.

Fleiri myndir af þyrlunni að flytja stoðvirki

Myndir hér fyrir neðan eru teknar af ljósmyndar í Ólafsvík fyrir FSR.

Saga

Í Ólafsvík voru á sínum tíma sett upp snjóflóðanet en mun veglegri stoðvirki með stálgrindum voru sett upp á árunum 2007 - 2008.

Aðgengisvottun

Aðgengisvottun Forgangur 1 og 2



Aðalvalmynd


Aukaval


Aukaval

Borgartúni 7A - 105 Reykjavík - Sími 569 8900 - Bréfsimi 569 8901


Leit

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi