Snjóflóðavarnir á Neskaupstað, stoðvirki í Drangagili - (Síðan er ófullgerð)


Snjóflóðavarnir á Neskaupstað, stoðvirki í Drangagili - (Síðan er ófullgerð)

 Verkefniskynning

Verkefnisnúmer:  633 1731
Síðast uppfært 9. 4. 2008

Fyrsti áfangi stoðvirkja til snjóflóðavarna á Neskaupstað er í Drangagili og var þar um að ræða þvergarð og keilur. Framkvæmdir við stoðvirkin voru unnar á árunun 2001 til 2002.

Verkkaupar voru Umhverfisráðuneytið (Ofanflóðasjóður) og Fjarðabyggð. Umsjón með verkefninu hafði Framkvæmdasýsla ríkisins.

Frumathugun

Snjóflóðahætta er allmikil í Neskaupstað og þéttbýlinu er ógnað frá mörgum snjóflóðafarvegum.

Niðurstaða frumathugunar var að koma fyrir, auk varnargarðs niður við byggðina, upptakastoðvirkjum í fjallinu þar ofan við.

Frumathugun vegna verkefnisins vann Verkfræðistiofa Sigurðar Thoroddsen hf. (VST hf.) og Cemagref í Frakklandi. Eftirlit með stoðvirkjum hafði Stefan Margareth.

Áætlunargerð

Verkfræðihönnuðir voru Línuhönnun hf. og Cemagref í Frakklandi

Niðurstaða hönnunar var að byggja stoðvirki 1.250 metra að lengd og 3,5 og 4,0 metra há.

Verkleg framfvæmd

Eftirlit fyrir FSR við stoðvirki hafði Verkfræðistofa Austurlands.

Verktaki við stoðvirki var E.I. Montagne Frakklandi.

Aðgengisvottun

Aðgengisvottun Forgangur 1 og 2



Aðalvalmynd


Aukaval


Aukaval

Borgartúni 7A - 105 Reykjavík - Sími 569 8900 - Bréfsimi 569 8901


Leit

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi