Þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi


Þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi

 Verkefniskynning

Verkefnisnúmer:  614 2130
Síðast uppfært 9. 1. 2009

Þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi er í hönnun. Í framhaldi af samkeppni sem haldin var árið 2006 var leitað til vinningshafa um áframhaldandi hönnun og unnar aðalteikningar á grundvelli tillögu Arkís ehf. og hafin verkhönnun.

Verkkaupi er Umhverfisstofnun. Umsjón með verkinu hefur Framkvæmdasýsla ríkisins, verkefnisstjóri hjá FSR er Guðbjartur Á. Ólafsson. Ráðgjafar eru Arkís ehf., arkitektahönnun, Efla ehf. sem annast burðarþols- og lagnahönnun og Verkís ehf. hönnun raflagna.

Frumathugun

Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull var stofnaður í júní 2001. Nefnd sem vann að undirbúningi þjóðgarðsins skilaði skýrslu þar sem gert var ráð fyrir miðstöð þjóðgarðsins á Hellissandi. Mikil umferð ferðamanna hefur verið um Hellissand og hefur mikil þörf verið á aðstöðu til að taka á móti gestum þjóðgarðsins þar sem þeir geta fengið upplýsingar og vantað hefur aðstöðu fyrir starfsmenn þjóðgarðsins.

Snæfellsbær lét í té lóð við Útnesveg á Hellissandi fyrir bygginguna. Lóðin er vel staðsett við þjóðveginn sem liggur fyrir Jökul, auk þess sem umhverfið er fallegt og gott útsýni. Þá er það kostur að við lóðina er gömul verbúð, einnig minjasafn og fyrirhugað er að koma upp tjaldstæði í grennd.

Vorið 2006 efndu Umhverfisstofnun og Snæfellsbær til samkeppni um hönnun þjónustumiðstöðvar Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls á Hellissandi í samstarfi við Arkitektafélag Íslands. Forsendur verkefnisins eru skilgreindar í samkeppnislýsingu og niðurstöðum dómnefndar, það er dómnefndaráliti ásamt vinningstillögu sem lögð er til grundvallar við hönnun þjóðgarðsmiðstöðvarinnar.

Meginmarkmið var að skapa aðlaðandi og hentuga umgjörð um starfsemi þjóðgarðsins. Gerðar voru kröfur til aðlögunar byggingarinnar að umhverfinu og að nýta góða eiginleika lóðarinnar. Markmið varðandi innra skipulag var að húsið þjóni vel mismunandi þáttum starfseminnar með aðstöðu fyrir gestina og vinnuaðstöðu starfsmanna um leið og innri tengsl þurfa að vera eðlileg og greið. Æskilegt er að húsið undistriki hlutverk þjóðgarðsins. Rekstarhagkvæmni og orkusparnaður og vistfræðileg sjónarmið samrýmast vel ímynd náttúruverndar og gætu komið fram í uppbyggingu, tæknilausnum og efnisvali.

Í umsögn dómnefndar um vinningstillöguna segir meðal annars að framsetning á hugmynd og tillögu sé góð, úrlausnin aðlaðandi, vel skipulögð og með skemmtilegum tilvísunum. Góðar tengingar utanhúss og í gegnum bygginguna og milli rýma innanhúss. Efnisval sannfærandi og kostur að öll starfsemi er á einu gólfi.

Formaður dómnefndar var Stefán Benediksson. Höfundar vinningstillögunnar voru Arkís ehf., Birgir Teitsson, Arnar Þór Jónsson, Edda Kristín Einarsdóttir, Sara Axelsdóttir og Þröstur Geir Árnason.

Í greinargerð höfunda segir meðal annars að byggingin í heild sé einföld að sniði, byggð úr tré og stálgrind. „Fiskibeinið“, norðurhluti byggingarinnar, greinist með röð milliveggja, þar er einkum aðstaða starfsmanna. Þar er klæðning utanhúss úr viði, innveggir ýmist úr krossviði eða gleri. „Þjóðvegurinn“ tengist bílastæði, tjaldstæði og gönguleiðum, leiðin er opin að móttöku- og upplýsingarými og öðrum meginrýmum svo sem funda- og kennslurými, veitingastofu, salernum og sýningarrýmum. „Jökulhöfði“, suðurhluti byggingarinnar, er hannaður með áherslu á upplifanir sem tengjast náttúrunni, með byggingarefnum sem í samspili við liti og gróður jarðar og birtubrigði árstíðanna. Form þessa meginrýmis er með tilvísun í hval, stórir, sléttir fletir, gluggar sem augu á hvorri hlið,. Klæðing utanhúss með Corten-stáli sem ryðgar lítillega og er með náttúrulegum ryðrauðum lit. Uppi á húsinu er gott útsýni til jökuls, lands og hafs.

Áætlunargerð

Á árinu 2008 var unnið að aðalteikningum Þjóðgarðsmiðstöðvarinnar á Hellissandi á grundvelli vinningstillögu Arkís ehf. í hönnunarsamkeppni.

Verkkaupi er Umhverfisstofnun, fulltrúi verkkaupa er Hjalti J. Guðmundsson, vegna rekstrar Guðbjörg Gunnarsdóttir þjóðgarðsvörður. Umsjón með verkinu hefur Framkvæmdasýsla ríkisins, verkefnisstjóri hjá FSR er Guðbjartur Á. Ólafsson.

Ráðgjafar og tengiliðir eru Arkís ehf., sem annast arkitekta- og lóðarhönnun, hönnunarstjóri Arnar Þór Jónsson. Efla ehf., fyrir stofuna annast Guðmundur Ragnarsson burðarþol, Rúnar H. Steinsen lagnahönnun, og Harpa Birgisdóttir og Árni Bragason hafa með höndum vistvæna vottun samkvæmt Breeam staðli. Hjá Verkís ehf. annast Guðjón L. Sigurðson hönnun raflagna. Gerður hefur verið samningur að fullhanna þjónustumiðstöðina.

Í þjónustumiðstöðinni verður sýningar- og kennsluaðstaða auk rýma fyrir starfsmenn svo sem skrifstofur, geymslur og aðstöðu fyrir þjóðgarðsverði. Byggingin samanstendur af tveimur megin byggingum er tengjast með miðrými. Önnur byggingin hýsir alla daglega starfsemi þjóðgarðsins og hin hýsir alla starfsemi er kemur að kennslu, fræðslu og upplýsingastarfi þjóðgarðsins. Meginrými byggingarinnar eru: Mið- og þjónusturými. Skrifstofur og starfsmannaaðstaða þjóðgarðsvarða. Veitingarými, eldhús og gestasalerni. Gestastofa og sýningarými. Geymsla og kyndiklefi. Sullrými og pallur.

Áætlað er að aðaluppdrættum ljúki í janúar 2009 og að verkhönnun til útboðs ljúki í apríl, það er verkteikningar allra hönnuða, verklýsingar, og kostnaðaráætlun hönnuða. Stefnt er að vottun með BREEAM staðli um vistvæna hönnun og framkvæmd og þá að umsögnin "very good" náist fram. Áætlað er að Þjóðgarðsmiðstöðin verði risin á 10 ára afmæli þjóðgarðsins í júní 2011.

Aðgengisvottun

Aðgengisvottun Forgangur 1 og 2



Aðalvalmynd


Aukaval


Aukaval

Borgartúni 7A - 105 Reykjavík - Sími 569 8900 - Bréfsimi 569 8901


Leit

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi