Snæfellsstofa í Vatnajökulsþjóðgarði


Snæfellsstofa í Vatnajökulsþjóðgarði

 Verkefniskynning

Verkefnisnúmer:  614 2120
Síðast uppfært 28. 6. 2010

Snæfellsstofa, ný og glæsileg gestastofa í Vatnajökulsþjóðgarði, var formlega opnuð fimmtudaginn 24. júní 2010. Svandís Svavarsdóttir afhenti þjóðgarðsverði bygginguna til daglegs reksturs. Opnun gestastofunnar, sem er í grennd við Skriðuklaustur, markar tímamót hjá Vatnajökulsþjóðgarði en nú verða gestastofur á þremur af fjórum rekstarsvæðum þjóðgarðsins. Markvert er að Snæfellsstofa er fyrsta umhverfisvottaða húsbygging á Íslandi og er hönnun þess og framkvæmd vel heppnuð. Gestastofan hentar vel starfseminni og listræn hönnunin styður við upplifun á einstakri náttúru Vatnajökulsþjóðgarðs. Það á einnig við um sýninguna "Veraldarhjólið" sem opnuð var í húsinu. Sýningin fjallar um hringrás náttúrunnar með áherslu á samspil gróðurs og dýralífs á svæðinu. Auk sýningarinnar hýsir Snæfellsstofa upplýsinga- og þjónustumiðstöð fyrir ferðafólk og minjagripaverslun auk þess sem þar verða skrifstofur og vinnuaðstaða fyrir starfsfólk þjóðgarðsins.
Gestastofan að Skriðuklaustri, eins og byggingin var kölluð þar til nýlega, fékk endanlegt nafn eftir að haldin var samkeppni um nafn gestastofunnar og varð Snæfellsstofa fyrir valinu.

Verkkaupi er Vatnajökulsþjóðgarður. Umsjón hefur Framkvæmdasýsla ríkisins, verkefnisstjórar hjá FSR eru Guðbjartur Á. Ólafsson og Björn Hallgrímsson sem fer með daglegt eftirlit. Arkitekt er Arkís ehf., Efla ehf. annaðist burðarþol, lagnir og vistvæna hönnun, Verkís ehf. hannaði raflagnir og Landmótun ehf. lóðarfrágang. Sýningarhönnun og uppsetningu hennar annaðist Þórunn S. Þorgrímsdóttir. Verktaki er Vélaverkstæði Hjalta Einarssonar ehf.

Frumathugun

Frumathugun um gestastofur Vatnajökulsþjóðgarðs, dagsett í október 2007, var unnin af FSR í samstarfi við umhverfisráðuneytið og fulltrúa í stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs. Stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs, sem skipuð var á árinu 2007, tók mið af niðurstöðum skýrslu nefndar skipaðri af umhverfisráðherra sem lauk störfum í lok árs 2006 og ákvað að skýrslan skyldi vera forsenda frumathugunar. Í skýrslunni er fjallað um drög að frumvarpi til laga um Vatnajökulsþjóðgarð. Lögð er áhersla á að markmið muni ekki nást nema tryggð sé uppbygging þjónustunets sem samanstandi af gestastofum, sem jafnframt eru skrifstofur þjóðgarðsvarða, starfsstöðvum landvarða og upplýsingastöðvum.

Í frumathuguninni er rýmisþörf gestastofa (meginstarfsstöðva) áætluð 550 til 600 m² hver, það er miðað við fjórar nýjar gestastofur samtals 2.200 til 2.400 m². Í hverri gestastofu verði rými fyrir móttöku, sýningar, skrifstofur, fundarherbergi, gestasalerni og veitingastofu. Gestastofa verði innan hvers rekstrarsvæðis og verði staðsetning þeirra á Skriðuklaustri, á Kirkjubæjarklaustri, í Mývatnssveit og á Hornafirði, auk núverandi stofa í Skaftafelli og í Ásbyrgi. Í tímaáætlun er miðað við fyrrnefnda röð framkvæmda, það er að gestastofa á Skriðuklaustri verði byggð fyrst. Í niðurstöðu frumathugunar var mælt með því að haldin yrði hönnunarsamkeppni um gestastofurnar.

Vatnajökulsþjóðgarður er stærsti þjóðgarður Evrópu. Flatarmál hans er um 12.000 ferkílómetrar eða um 11% af Íslandi. Ríflega helmingur þjóðgarðsins er jökull og þar er að finna samvirkni jarðelds, jarðhita og myndunar jökla, landmótun jökla og vatnsfalla. Markmiðið með stofnun og rekstri þjóðgarðsins er að vernda Vatnajökul og landsvæði honum tengd. Um þjóðgarðinn sjá nánar á http://www.vatnajokulsthjodgardur.is

Áætlunargerð

Haldin var hönnunarsamkeppni um gestastofu að Skriðuklaustri sem FSR auglýsti 6. janúar 2008 fyrir hönd verkkaupa, það er umhverfisráðuneytis og Vatnajökulsþjóðgarðs, og var skilafrestur 2. apríl 2008. Var það almenn, opin hönnunarsamkeppni. Fjöldi tillagna sem bárust voru sex. Þann 25. apríl 2008 lágu fyrir niðurstöður hönnunarsamkeppninnar. Fyrstu verðlaun hlaut Arkís, höfundar Birgir Teitsson og Arnar Þór Jónsson. Gerð er nánari grein fyrir samkeppninni á vef FSR undir Samkeppnir.

Í framhaldi af hönnunarsamkeppnninin var samið við hönnuði vinningstillögu um hönnun Gestastofunnar á Skriðuklaustri. Samingsaðilar eru Vatnajökulsþjóðgarður sem verkaupi og Arkís ehf. sem ráðgjafi. Fyrir ráðgjafa er umboðsmaður Þorvarður L. Björgvinsson og umsjónarmaður ráðgjafa er Birgir Teitsson. Arkís ehf. annast arktitektaráðgjöf og hefur ráðið verktaka við verkefnið, Eflu ehf. til að annnast hönnun burðarþols og lagna, Verkís ehf. til að vinna hönnun raflagna og Landmótun til að annast lóðarhönnun. Verkefnið felst í að fullhanna Gestastofu á Skriðuklaustri í Vatnajökulsþjóðgarði út frá samkeppnistillögu Arkís ehf.

Byggingin mun hýsa þjónustumiðstöð þjóðgarðsins með sýningar- og kennsluaðstöðu auk rýma fyrir starfsmenn þjóðgarðsins svo sem skrifstofur, geymslur og aðstöðu fyrir þjóðgarðsverði. Við hönnunina var lögð sérstök áhersla á tengsl byggingarinnar við umhverfið og vistræn sjónarmið eru höfð í hávegum. Var ákveðið að uppfylla staðla um vistvæna hönnun og að húsið verði vottað sem slíkt samkvæmt viðurkenndum stöðlum. Talið er að gestastofan verði fyrsta byggingin hér á landi sem fengi slíka vottun. Miðað er við að nota breska staðalinn BREEAM sem tekur til hönnunar, byggingar og rekstrar hússins.

Heildarkostnaðaráætlun FSR í mars 2009 var 320,3 m.kr. (milljónir króna), þar af ráðgjöf 26,0 m.kr., framkvæmdakostnaður (það er samningsgreiðslur að meðtöldum verðlagsbreytingum og aukaverkum) 271,8 m.kr., umsjón og eftirlit 15,5 m.kr. , gjöld og rekstur á framkvæmdatíma 3,8 m.kr og búnaður og listskreyting 3,2 m.kr.

Fjármálaráðuneytið veitti heimild til útboðs í apríl 2010.

Tengiliðir við FSR hjá Arkís eru Birgir Teitsson og Lárus Guðmundsson sem er hönnunarstjóri. Hjá Eflu ehf. varðandi burðarþol og lagnir Guðmundur Ragnarsson, hjá Eflu ehf. vegna vistvænnar hönnunar Helga J. Björnsdóttir og vegna samgöngumannvirkja Guðmundur Guðnason. Tengiliður við Verkís ehf. vegna hönnunar rafmagns er Bragi Þór Sigurdórsson.

Verkleg framkvæmd

Framkvæmdasýsla ríkisins, fyrir hönd Vatnajökulsþjóðgarðs, óskaði eftir tilboðum í framkvæmdir við nýbyggingu gestastofu á Skriðuklaustri í Fljótsdalshreppi. Gestastofan verður 755,6 fermetrar að stærð, byggð úr steinsteypu með sjónsteypuáferð að utan, einangruð að innan og klædd að hluta með lerkivið. Hærri hluti byggingarinnar er úr timbri og með koparklæðningu á veggjum og þaki. Þakið verður að hluta létt þak en að hluta steypt þak fergt með torfi. Burðarveggir eru steinsteyptir og skilveggir steinsteyptir og/eða léttir gipsveggir. Geymsluhús er 68,3 fermetra jarðhýsi í um það bil 18 metra fjarlægð frá aðalbyggingu byggt að hluta inn í grasbrekkuna.

Í auglýsingu útboðsins er vakin er sérstök athygli á því, að verkkaupi hyggst fá alþjóðlega umhverfisvottun samkvæmt vottunarkerfi BREEAM (British Building Research Establishment Environmental Assessment Method) á nýbygginguna. Framkvæmdum, fyrir utan lóðarfrágang og palla, var áætlað að ljúka 15. maí 2010.

Framkvæmdir við Gestastofu á Skriðuklaustri voru boðnar út í vor og tilboð opnuð 28. apríl 2009. Þann 3. júní 2009 var tekið tilboði verktakans Vélaverkstæðis Hjalta Einarssonar ehf. sem nam 253.434.633 kónum og var 95,77% af kostnaðaráætlun.

Í maí 2010 voru framkvæmdir við gestastofuna aðeins lítið á eftir áætlun og var byggingin þá nærri tilbúin að utan og innandyra var unnið að lokafrágang, og á lóð við útipalla, aðkomupalla og lagnir á bílastæði. Unnið var að sýningarhönnun og var margmiðlunarhlutinn boðinn út á vegum FSR. Undir lok framkvæmda var unnið að að því að ljúka frágangi byggingar og lóðar, svo og uppsetningu sýningar tímanlega fyrir opnun gestastofunnar.

Gestastofan að Skriðuklaustri, eins og byggingin var kölluð þar til við loka framkvæmda, fékk endanlegt nafn eftir að haldin var samkeppni um nafn gestastofunnar og varð Snæfellsstofa fyrir valinu.

Snæfellsstofa var formlega opnuð 24. júní 2010 í viðurvist Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra sem afhenti þjóðgarðsverði bygginuna til daglegs reksturs. Opnun gestastofunnar markar tímamót hjá Vatnajökulsþjóðgarði en nú verða gestastofur á þremur til fjórum rekstarsvæðum þjóðgarðsins. Sýningin Veraldarhjólið, sem var opnuð við sama tækifæri, fjallar um hringrás náttúrunnar með áherslu á samspil gróðurs og dýralífs á svæðinu. Auk sýningarinnar hýsir Snæfellsstofa upplýsinga- og þjónustumiðstöð fyrir ferðafólk og minjagripaverslun auk þess sem þar verða skrifstofur og vinnuaðstaða fyrir starfsfólk þjóðgarðsins.

Vistvæn vottun

Eins og fyrr segir var frá upphafi verkefnisins lögð áhersla vistræn sjónarmið og ákveðið að uppfylla viðurkennda staðla í þeim efnum. Ráðgjafi vegna vistvænnar vottunar er Efla ehf. og er Helga J. Bjarnadóttir hjá Eflu í forsvari fyrir vistvænu málin. Miðað er við að breska staðalinn BREEAM sem tekur til hönnunar, byggingarframkvæmdar og rekstrar hússins. Við hönnunina hefur vottunarstaðallinn verið áhrifavaldur við skilgreiningu á ýmsum hönnunaratriðum og kröfum sem fylgt er eftir framkvæmdastigi og verður fylgt eftir við resktur hússins.

Við upphaf framkvæmda hafa atriði skýrst sem varða BREEAM vottunina. Í tilviki Gestastofunnar á Skriðuklaustri eru skor eftirfarandi af mögulegum skorum: Umhverfisstjórnun 7 af 11, heilsa og vellíðan 9 af 9, orka 14 af 21, samgöngur 2 af 11, vatn 6 af 9, byggingarefni 3 af 13, úrgangur 4 af 5, landnotkun og vistfræði 6 af 11 og mengun 11 af 12. Samanlagt 62 skor af 101 mögulegum. Af þessu sést að skor vegna orku ræður miklu en á það hefur verið bent að aðstæður varðandi orku er á Íslandi talsvert frábrugðið því sem er í nágrannalöndunum. Orkan er þó allstaðar takmörkuð auðlind, einnig á Íslandi og mun ávallt vega þungt í vottunarkerfum. Af framangreindu sést einnig að skor 3 af 13 vegna byggingarefna er lægra en annað. Það hefur allnokkur áhrif að steinsteypan er ekki metin endurnýtanleg en bundnar eru vonir við að sum byggingaerefnanna verði síðar hægt að fá vottuð sem mun þá hækka þetta lága skor vegna byggingaerefna.

Markmið varðandi orku og vatn sem sett hafa verið í þessu verkefni eru meðal annars að setja viðmið um hámarksorkunotkun byggingarinnar, auka einangrun og loftþéttleika, lágmarka þörf á kælingu, velja lausnir sem krefjast minni orku á rekstrartíma, leggja áherslu á notendastýringu, velja vatnssparandi blöndunartæki og salerni, huga að lausnum til þess að endurnota vatn til kælingar og gera ráð fyrir mælum og/eða hússtjórnarkerfum til að fylgjast með notkun vatns og orku.

Í útboðs- og samningsskilmálum eru kröfur um virka umhverfistjórn sem felst í vöktun og skráningu, fyrirbyggjandi verklagi, aðgerðum til að lágmarka umhverfisáhrif, efnisval og efnisvottun svo og fræðslu. Þar eru einnig kröfur um virka öryggisstjórn sem felst í virkri vinnuvernd, skráningu slysa, viðbragðsáætlunum, stjórn á notkun eiturefna og fræðslu.

Varðandi framkvæmdirnar var áhersla lögð á kröfur séu gerðar til verktaka um að hann setji sér stefnu varðandi innkaup og markmið um lágmörkun notkunar orku á byggingarstað, verktaki hugi að því hvernig megi lágmarka flutninga byggingarefna og skilgreini aðgerðir til þess að vernda vistkerfi og draga úr rykmengun, verktaki sé með virka úrgangsstjórnun og að haldin verði fræðsla um umhverfisstjórnun á vinnusvæði.

Varðandi eftirlit eru áhersluatriði vel skilgreindar kröfur um að eftirlit hafi þekkingu á markmiðum vistvænna bygginga, vinni undir gæðastjórnunarkerfi og eftir gátlistum.




Aðgengisvottun

Aðgengisvottun Forgangur 1 og 2



Aðalvalmynd


Aukaval


Aukaval

Borgartúni 7A - 105 Reykjavík - Sími 569 8900 - Bréfsimi 569 8901


Leit

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi