Heilbrigðisstofnunin Siglufirði, viðbygging


Heilbrigðisstofnunin Siglufirði, viðbygging

 Verkefniskynning

Verkefnisnúmer:  608 7192
Síðast uppfært 16. 10. 2009

Ný viðbygging Heilbrigðisstofnunar Siglufjarðar var vígð 13. október 2009 við hátíðlega athöfn að viðstöddu fjölmenni. Það var elsti Siglfirðingurinn, Elín Jónasdóttir, 101 árs að aldri, sem var fengin til að klippa á borðann. Meðal gesta var Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, þingmenn kjördæmisins og fulltrúar sveitarfélagsins Fjarðarbyggðar, sem varð til þegar Siglufjörður og Ólafsfjörður sameinuðust, einnig fulltrúar heilbrigðisstofnunarinnar. Sigurður Hlöðversson, verkefnastjóri FSR með staðsetningu á Siglufirði, var fundarstjóri. Atburðinum er nánar lýst á vef Siglufjarðar.

Framkvæmdum við viðbyggingu Heilbrigðisstofnunar Siglufjarðar lauk í desember 2008 og síðan var unnið að því að koma fyrir búnaði. Stærð viðbyggingarinnar er um 1.000 fermetrar og er byggingin á tveimur hæðum, staðsett austan við eldri byggingu. Á neðri hæð hússins er aðalinngangur heilsugæslustöðvar og sjúkrahúss og aðkoma fyrir sjúkrabíl og slysastofa. Í nýbyggingunni er einnig biðstofa sjúklinga, hluti sameiginlegrar setustofu og borðsalar starfsfólks ásamt almennum þjónusturýmum. Skrifstofur og skoðunarstofur lækna og hjúkrunarfræðinga eru flestar á neðri hæð. Á efri hæðinni eru fjögur legurými, fundarsalur, skrifstofur yfirstjórnar, setustofa og matsalur fyrir vistfólk.

Verkkaupi er heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið. Umsjón með framkvæmdunum hefur Framkvæmdasýsla ríkisins og er verkefnisstjóri FSR Sigurður Hlöðversson. Arkitekt er Helgi Hafliðason, lóðarhönnun annaðist Landslag ehf., burðarþol Almenna verkfræðistiofan hf., lagnir hannaði Lagnatækni ehf. og raflagnir Rafhönnun hf. Verktaki var Byggingarfélagið Berg ehf.

Frumathugun

Frumathugun var unnin í apríl 2004 og var gerð í einu lagi fyrir endurbætur og viðbyggingu Heilbrigðisstofnunarunnar Siglufirði. Var hún lögð fram í apríl 2004. Þar kom fram að þröngt var orðið um starfsemina og einnig kölluðu aðstæður og vinnulag á úrbætur, svo og auknar kröfur til brunavarna og fleira. Lögð var fram húsrýmisáætlunin sem gerð var í samræmi við þarfagreininguna og forskrift heilbrigðisráðuneytisins.

Niðurstaða frumathugunar var að endurbætur á núverandi húsnæði næðu til um 530 fermetrar húsnæðis og reist yrði viðbygging, um 950 fermetrar. Eftir að viðbyggingin væri tekin í notkun yrði endurbætt um 915 fermetrar af eldra húsnæði. Áfangaskipting tæki mið af því að sem minnst rask yrði á starfseminni. Á árinu 2005 var lögð fram eftirfarandi áfangaskipting.

Útboð A. Endurbætur á suðurálmu og hluta vesturálmu.
Útboð B. Viðbygging ásamt tengingu við núverandi hús.
Útboð C. Endurbætur á norðurálmu og hluta vesturálmu.

Áætlunargerð

Unnið var að áætlunargerð á grundvelli frumathugunar.

Umsjón með verkefninu á stigi áætlunargerðar hafði hjá FSR Gíslína Guðmundsdóttir. Arkitekt er Helgi Hafliðason, lóðarhönnun annaðist Landslag ehf., burðarþol Almenna verkfræðistiofan hf., lagnir hannaði Lagnatækni ehf. og raflagnir af Rafhönnun hf. Verktaki er Byggingarfélagið Berg ehf.

Viðbyggingin er að meginhluta til á tveimur hæðum, steinsteypt bygging með tveimur meginhæðum, þakrými og turni. Grunnflötur hússins er 520 fermetrar, gólfflötur um 980 fermetrar og rúmmál um 3.440 rúmmetrar. Á neðri hæð hússins er aðalinngangur heilsugæslustöðvar og sjúkrahúss. Þar er einnig aðkoma fyrir sjúkrabíl og slysastofa. Í nýbyggingunni er einnig biðstofa sjúklinga, hluti sameiginlegrar setustofu og borðsalar starfsfólks ásamt almennum þjónusturýmum. Skrifstofur og skoðunarstofur lækna og hjúkrunarfræðinga eru flestar á neðri hæð. Á efri hæðinni eru fjögur legurými, fundarsalur, skrifstofur yfirstjórnar, setustofa og matsalur fyrir vistfólk.

Heildarkostnaðaráætlun vegna framkvæmdarinnar var 240 milljónir króna á verðlagi í desember 2006. Þar af var verkframkvæmd áætluð 196 milljónir króna að meðtöldum verðlagsbreytingum og áætluðum aukaverkum.

Verkleg framkvæmd

Eins og fyrr segir er um er að ræða annan áfanga við framkvæmdir við Heilbrigðisstofnunarinnar Siglufirði við Hvanneyrarbraut 37-39. Í þessu útboði felst að reisa og fullinnrétta nýja viðbyggingu en í fyrsta og þriðja áfanga eru endurbætur eldri bygginga.

Í útboðsgögnum er gerð byggingar í meginatriðum lýst á eftirfarandi hátt. Húsið er steinsteypt, einangrað utan og klætt báruðum stálplötum og sléttum trefjaplötum. Þök verða að mestu klædd báruplötum.

Gert er ráð fyrir verksmiðjuframleiddum glugga- og dyraeiningum og að timburkarmar verði fullmálaðir að innanverðu en málmrammar að utan með endanlegu yfirborði. Gólfplötur eru úr forsteyptum einingum. Gólf verða flest lögð linoleumdúk en flísar við innganga. Steinsteyptir veggir verða múrhúðaðir, léttir veggir klæddir spónaplötum og gifsplötum og loft niðurtekin kerfisloft. Hurðir verða lakkaðar með sýruhertu lakki.

Tækni í húsinu verður þannig að upphitun verður með hefðbundnu sniði, það er ofnar á útveggjum, og innrými loftræst (útsog) í samræmi við reglugerðir. Í skrifstofum og læknarýmum verða raflagnastokkar undir gluggum, bruna- og innbrotaviðvörunarkerfi verður í húsinu, svo og sjúkrakallkerfi og ennfremur tölvu- og símalagnir.

Auk þess að reisa og fullinnrétta viðbygginguna fylgir verkinu lagfæringar í rýmum þar sem viðbygging tengist núverandi álmu.

Skila skal byggingunni fullfrágenginni að utan og innan og fullfrágenginni lóð í apríl 2008.

Verkið var boðið út og tilboð opnuð hjá Ríkiskaupum 9. janúar 2007. Kostnaðaráætlun var 198.500.000. Tilboði Byggingarfélagsins Berg hef var tekið þann 5. febrúar 2007.

Í byrjun september 2007 var staða framkvæmda eftirfarandi. Lokið var við að steypa upp 1. hæð og vinna hafiðn við uppslátt veggja á 2. hæð. Unnið var við útilýsingu og að leggja snjóbræðslu í gangstéttar og plön. Byggingu stoðveggja bílastæðis var lokið og verið að gera bílastæði klárt undir malbikun.

Framkvæmdum við viðbygginguna lauk í desember 2008. Í byggingunni eru nokkur rými óinnréttuð þar sem innrétting þeirra hefur tilheyrt fyrirhugaðum áfanga C.

Aðalverktaki er Byggingarfélagið Berg ehf. Eftirlit fyrir FSR hafði Þorsteinn Jóhannesson verkfræðingur á Verkfræðistofu Siglufjarðar sf.

Nýja viðbygging Heilbrigðisstofnunar Siglufjarðar var vígð 13. október 2008 við hátíðlega athöfn að viðstöddu fjölmenni.

Við vígslu nýbyggingarinnar var afhjúpað listaverkið Þorp eftir Guðjón Ketilsson sem gefið var til minningar um Birgi Guðlaugsson byggingarmeistara, en hann var byggingarmeistri að verkinu, gefendur eru systur Birgis þær Regína, Helena, Sonja og Birgitta Guðlaugsdætur.

Aðgengisvottun

Aðgengisvottun Forgangur 1 og 2



Aðalvalmynd


Aukaval


Aukaval

Borgartúni 7A - 105 Reykjavík - Sími 569 8900 - Bréfsimi 569 8901


Leit

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi