Hjúkrunarheimilið Jaðar í Ólafsvík, Snæfellsbæ


Hjúkrunarheimilið Jaðar í Ólafsvík, Snæfellsbæ

 Verkefniskynning

Verkefnisnúmer:  607 8300
Síðast uppfært 2. 11. 2009

Hjúkrunarheimilið Jaðar í Ólafsvík er gustlokað og hafin verður glerjun á næstunni. Um er að ræða hjúkrunarheimili um 1.100 fermetrar að stærð á tveimur hæðum sem tengist eldra dvalar- og hjúkrunarheimili með tengigangi á báðum hæðum. Á neðri hæð byggingarinnar eru 5 einstaklingsrými ætluð heilabiluðum en á efri hæð eru 7 almenn hjúkrunarrými. Á tengigangi er lyfta milli hæða. Byggingin er steinsteypt og þök ýmist steinsteypt eða úr timbri. Ytri klæðningar eru að mestu úr sinki.

Verkkaupi er félags- og tryggingamálaráðuneytið og Snæfellsbær. Umsjón með verkefninu fyrir hönd verkkaupa hefur Framkvæmdasýsla ríksins, verkefnisstjórar FSR eru Guðbjartur Á . Ólafsson og Hafsteinn Steinarsson sem fer með eftirlit framkvæmdar. Arkitektar eru VA arkitektar ehf., Ferill ehf. verkfræðistofa annast hönnun burðarþols og lagna og Mannvit hf. hannar raflagnir. Verktaki er Afltak ehf.

Myndir frá framkvæmdartíma eru neðst á síðunni.

Frumathugun

Í Snæfellsbæ hefur þörf á hjúkrunarrými aukist á undanförnum árum og hefur sveitarfélagið beitt sér fyrir nýrri byggingu hjúkrunarheimilis. Í Ólafsvík í Snæfellsbæ hefur verið starfrækt dvalar- og hjúkrunarheimili og var ákveðið að staðsetja þar einnig nýja hjúkrunarheimilið, það er á lóðinni Hjarðartúni 3, í Snæfellsbæ. Miðað var við að hjúkrunarheimilið tengdist eldra dvalar- og hjúkrunarheimili.

Snæfellsbær hélt hönnunarsamkeppni um nýbygginguna og voru í samkeppnisgögnum lagðar fram forsendur frumathugunar og að því stefnt að byggingin yrði tveggja hæða og 815 fermetrar að stærð.

Áætlunargerð

Fjármálaráðuneytið veitti heimild til áætlunargerðar í febrúar 2008 miðað við 815 fermetra hjúkrunarheimili þar sem sveitarfélagið greiddi eins og venja er 15% og ríkissjóður 85% kostnaðar. Félags- og tryggingamálaráðuneytið óskaði eftir breytingu miðað við að í hönnun yrði gert ráð fyrir meira rými á hvern einstakling en áður var ráðgert. Í frumhönnunarferlinu jókst stærð byggingarinnar einnig vegna tengingar við eldri byggingu og varð 1.104 fermetrar eða um það bil 289 fermetrum stærra en gert var ráð fyrir. Í viðræðum félagsmálaráðuneyti og sveitarfélags var samþykkt að sveitarfélagið greiddi alfarið 100 fermetra af þessari stækkun en ríkissjóður og sveitarfélagið greiddu að öðru leyti í venjulegum hlutföllum. Fjármálaráðuneytið féllst á þessa breytingu á heimild til áætlunargerðar.

Arktitektar vinningstillögu hönnunarsamkeppninnar voru fengnir til hönnunar og miðað við að hönnunin byggðist á tillöguteikningu þeirra. VA arkitektar ehf. annast ariktektahönnun, Ferill ehf. verkfræðistofa annast hönnun burðarþols og lagna, Mannvit hf. hannar raflagnir.

Aðalteikningar voru samþykktar hjá Snæfellsbæ og í lok í byrjun febrúar 2009 lágu fyrir fullgerð útboðsgögn, þar með talið útboðs- og samningskilmálar, verklýsingar, teikningar og magnskrár, ásamt kostnaðaráætlun hönnuða.

Í útboðsgögnum kemur meðal annars fram að byggingin verður reist á lóðinni Hjarðartúni 3 í Snæfellsbæ og er hjúkrunarheimili fyrir 12 einstaklinga, alls 1.105 m². Um er að ræða tveggja hæða nýbyggingu sem tengist eldra dvalar- og hjúkrunarheimili með tengigangi á báðum hæðum. Á neðri hæð byggingarinnar eru 5 einstaklingsrými ætluð heilabiluðum en á efri hæð eru 7 almenn hjúkrunarrými. Á tengigangi er lyfta milli hæða.

Byggingin er steinsteypt og þök ýmist steinsteypt eða úr timbri. Útveggir eru einangraðir utan og klæddir dökku sinki og jatoba timburklæðningu. Gluggar og útihurðir eru úr áli/timbri en opnanleg fög úr timbri. Upphitun er með gólfhita og ofnum og loftræsing er um glugga en vélræn frá eldhúsi og gluggalausum rýmum. Sjálfvirkt brunaviðvörunarkerfi er í byggingunni og brunavarnir með skiptingu hússins í brunasamstæður og brunahólf með slöngukeflum og handslökkvitækjum. Aðalinngangur verður um vesturinngang og um inngang eldra húss. Byggingin er 4.498 m³.

Heildarkostnaðaráætlun FSR í nóvember 2008 var 420,4 m.kr. (milljónir króna) , þar af ráðgjöf 29,9 m.kr., framkvæmdakostnaður (það er samningsgreiðslur að meðtöldum verðlagsbreytingum og aukaverkum) 338,5 m.kr., umsjón og eftirlit 18,1 m.kr. , gjöld og rekstur á framkvæmdatíma 9,5 m.kr og búnaður og listskreyting 24,4 m.kr.

Framkvæmdir við jarðvinnu voru unnar á árinu 2008 að undangenginni verðkönnun.

Framkvæmd

Framkvæmdirnar voru auglýstar til útboðs sunnudaginn 8. febrúar 2009, þar sem Framkvæmdasýsla ríkisins, fyrir hönd félags- og tryggingamálaráðuneytisins og Snæfellsbæjar, óskar eftir tilboðum í framkvæmdir við nýbyggingu hjúkrunarheimilis við Hjarðartún 3 í Ólafsvík. Í auglýsingunni segir ennfremur:

Um er að ræða 1.105 m² hjúkrunarheimili á tveimur hæðum sem tengist eldra dvalar- og hjúkrunarheimili með tengigangi á báðum hæðum. Á neðri hæð byggingarinnar eru 5 einstaklingsrými ætluð heilabiluðum en á efri hæð eru 7 almenn hjúkrunarrými. Á tengigangi er lyfta milli hæða. Byggingin er steinsteypt og þök ýmist steinsteypt eða úr timbri. Ytri klæðningar eru að mestu úr sinki. Skipt hefur verið um jarðveg undir sökklum en lóðarfrágangur er að mestu innifalinn í þessu útboði.

Helstu magntölur eru:
Mót 2.800 m² (fermetrar)
Bendistál 41.000 kg (kíló)
Steinsteypa 590 m³ (rúmmetrar)
Gólfhitalagnir 8.300 Lm (lengdarmetrar)
Línóleumdúkar 720 m²
Sinkklæðningar 840 m²

Þá segir í útboðsauglýsingunni að verkinu skuli vera að fullu lokið eigi síðar en 1. júlí 2010.

Tilboðin voru opnuð hjá Ríkiskaupum 24. febrúar 2009. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 357.431.798 krónur.

Þann 30. mars 2009 var tekið tilboði Afltaks ehf. að upphæð 255.092.246, sem var 71,37% af kostnaðaráætlun. Í október 2009 var húsið uppsteypt og gustlokað. Glerjað verður í tréglugga næstu vikurnar. Matsalurinn verður glerjaður síðar, þar verða álgluggar sem eru um fjögurra metra háir með útsýni út á höfnina.

Meðfylgjandi myndir sýna framvindu framkvæmda fram til októberloka 2009.

Aðgengisvottun

Aðgengisvottun Forgangur 1 og 2



Aðalvalmynd


Aukaval


Aukaval

Borgartúni 7A - 105 Reykjavík - Sími 569 8900 - Bréfsimi 569 8901


Leit

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi