Hjúkrunarheimili í Kópavogi, hjúkrunaríbúðir Boðaþingi 5 og 7
Framkvæmdum við byggingu hjúkrunaríbúða við Boðaþing í Kópavogi er við það að ljúka. Vígsla fór fram 19. mars 2010. Fyrstu íbúar munu flytjast inn á næstu vikum. Um er að ræða tvær tveggja hæða álmur við Boðaþing 5 og 7, alls 44 íbúðir. Áður voru hafnar framkvæmdir á vegum Kópavogsbæjar við þjónustumiðstöð við Boðaþing 9 sem tengist þessum íbúðarálmum og er áætlað að verði einnig tekin í notkun á þessu ári.
Verkkaupi er félags- og tryggingamálaráðuneytið og Kópavogsbær. Umsjón með framkvæmdunum hefur Framkvæmdasýsla ríkisins, verkefnisstjórar eru Guðbjartur Á. Ólafsson og Þórir Jónsson sem fer með daglegt eftirlit. Arkitektar eru THG arkitektar, burðarþol og lagnir hannaði VSÓ ráðgjöf og lóð hannaði Landark ehf. Verktaki er Mark-Hús ehf.
Frumathugun
Frumathugun, dagsett í apríl 2007, var unnin af heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu og lagðir fram frumuppdættir frá Teiknistofu Halldórs Guðmundssonar. Fram kemur að miðað var við að uppfylla þörf á hjúkrunarheimili fyrir 44 aldraða í Kópavogi. Áhersla var á að hjúkrunarheimilið yrði sem líkast einkaheimili. Í umsögn FSR um frumathugun, dagsettri í júní 2007, kemur meðal annars fram að fjármögnun miðist við kostnaðarskiptingu samkvæmt eignarhluta og er hluti ríkis er 85% og Kópavogsbæjar 15%.
Áætlunargerð
Samkvæmt deiliskipulagi Kópavogsbæjar fyrir Hrafnistu í Kópavogi er fyrirhugað hverfi fyrir þjónustu við aldraða við Boðaþing í Kópavogi. Kjarninn er þjónustumiðstöð sem er tveggja hæða bygging með kjallara við Boðaþing 9 og út frá henni munu ganga fjórar tveggja hæða hjúkrunarálmur, hver með 22 íbúðum eða alls 88 sérhæfðum þjónustuíbúðum. Fyrirhugað er að byggja hjúkrunarálmurnar í áföngum. Verkefnið sem hér um ræðir er 1. áfangi hjúkrunaríbúða, við Boðaþing 5 og Boðaþing 7, með samtals 44 þjónustuíbúðum. Samkvæmt skráningartöflu er grunnflötur Boðaþings 5 alls 1.484,6 m² og Boðaþings 7 alls 1.482,6 m², áfanginn er því samtals 2.966,8 m² og 10.890,4 m³. Kjarnabyggingin að Boðaþingi 9 er þegar í byggingu á vegum Kópavosbæjar.
Fyrirkomulag er þannig að í byggingunum er ein eining á hverri hæð með 11 íbúðum, tvær einingar í hvorri byggingu. Við hönnun húsanna var óskað eftir því að séreignarsvæði íbúa yrði stækkað á kostnað hefðbundinna sameiginlegra rýma á hjúkrunarheimilum, svo sem sjúkrabaðs, vaktherbergja, líns og þvottaherbergja. Í hverri einingu er gert ráð fyrir kaffikróki og baðherbergi og sameiginlegri setu- og borðstofu fyrir framan íbúðirnar, einnig starfsmannarými og geymslum. Sameiginlegur inngangur er fyrir bæði húsin sem eru tengd saman með tengigangi.
Húsið er úr staðsteyptri steinsteypu, einangrað að utan og klætt að utan með flísum og áli. Veggir á hjúkrunaríbúðum eru klæddir með ljósum flísum að mestu en blandað með dekkri flísum. Þak er flatt. Gluggar eru álklæddir trégluggar. Að innan eru útveggir og steinsteyptir innveggir sandspartlaðir og málaðir. Gluggar eru álklæddir trégluggar. Léttir innveggir eru gifsveggir. Loft eru almennt sandspörtluð og máluð, á göngum eru niðurtekin loft . Gólf í sameign eru almennt lögð linoleumdúk. Lagna- og loftræsikerfi gera ráð fyrir hitun með veggofnum og auk náttúrulegrar loftræstingar verði vélræn útlofun í húsunum. Öll lokuð rými verða loftræst. Rafkerfi í húsinu er með sjúkrakallkerfi og hurðir eru með aðgangsstýrikerfi. Húsið er brunahannað og í því verður komið fyrir vatnsúðakerfi og brunaviðvörunarkerfi.
Arkitektar eru THG arkitektar, burðarþol og lagnir hannaði VSÓ ráðgjöf og lóð hannaði Landark ehf.
Heildarkostnaðaráætlun FSR var 938,6 m.kr. (milljónir króna) á verðlagi í maí 2008 (byggingavísitala 416,5), að viðbættum áætluðum kostnaði vegna verðlagsbreytinga á framkvæmdatímanum. Innifalinn er kostnaður við ráðgjöf, verkframkvæmd, umsjón og eftirlit, svo og búnað (húsgögn) og listskreytingar. Þar af var kostnaður við verkframkvæmd áætlaður 760,5 m.kr. en í kostnaðaráætlun við opnun tilboða eru ekki meðtalin jarðvegsskipti 7,8 m.kr. né lóðarframkvæmd 70 m.kr.
Heildarkostnaðaráætlun FSR í mars 2010 er 938,6 m.kr., samanber hér að ofan, það er með ráðgjöf, verkframkvæmd, umsjón og eftirliti svo og búnaði og listskreytingum.
Fjármögnun er áætluð miðað við 15% greiðslu Kópavogsbæjar og 85% greiðslu ríkisins. Hlutur ríkisins skiptist þannig að Framkvæmdasjóður aldraðra muni greiða 40% en 45% verði greidd af sérstöku 1.300 m.kr. framlagi til fækkunar á biðlistum eftir hjúkrunarrýmum sem samið var um milli ríkisins og Landssambandi eldri borgara.
Þrívíddarteikningar THG arkitekta gáfu, á undirbúningsstigi verkefnisins , góða hugmynd um útlit hjúkrunarunarheimilisins.
Verkframkvæmd
Framkvæmdir voru boðnar út í júlí 2008. Tilboð voru opnuð 27. júlí 2008 og var kostnaðaráætlun verkframkvæmdar við opnun tilboða 795.833.632 krónur.
Í útboðsgögnum segir meðal annars eftirfarandi. Um er að ræða hjúkrunarheimili í tveimur tveggja hæða álmum sem ganga út frá steinsteyptri kjarnabyggingu. Byggingarnar eru úr staðsteyptri steinsteypu og klæddar að utan með flísum og áli og standa við Boðaþing 5 og 7. Heildarrúmmál byggt í þessum áfanga er 10.890,4 m³. Skipt hefur verið um jarðveg undir sökklum beggja álmanna. Lóðarfrágangur er ekki innifalinn í þessu útboði. Lok framkvæmdatíma er 1. desember 2009.
Helstu magntölur í útboðsgögnum voru: Mót 10.620 m² (fermetrar), bendistál 119.400 kg (kíló) , steinsteypa 2.342 m³ (rúmmetrar), stálvirki 4.254 kg og málun veggja 5.500 m².
Þann 19. ágúst 2008 var tekið tilboði Mark-Húsa ehf. að upphæð 634.433.556 krónur sem er 79,72% af kostnaðaráætlun verkframkvæmdar. Samið var við Mark-hús ehf. og hóf verktaki verkið haustið 2008.
Umsjón með framkvæmdunum hefur Framkvæmdasýsla ríkisins, verkefnisstjórar FSR eru Guðbjartur Á. Ólafsson og Þórir Jónsson sem fer með daglegt eftirlit og einnig hefur Guðmundur Pálsson ásamt þeim umsjón með búnaðarkaupum .
Vegna efnahagsástandsins var verktaka heimilað að skila verkinu síðar en 1. desember 2009 eins og miðað var við í útboðsgögnum. Í mars var framkvæmdum við það að ljúka og unnið er að því að koma fyrir húsgögnum. Íbúar munu flytjast inn síðari hluta mars og á næstu vikum.
Vígsla Hrafnistu í Kópavogi, nýja hjúkrunarheimilisins við Boðaþing, fór fram föstudaginn 19. mars 2010. Ávörp fluttu Árni Páll Árnason félags- og tryggingamálaráðherra, Gunnsteinn Sigurðsson bæjarstjóri og Guðmundur Hallvarðsson stjórnarformaður Hrafnistu/Sjómannadagsráðs.