Hjúkrunarheimili Suðurlandsbraut 66


Hjúkrunarheimili Suðurlandsbraut 66

 Verkefniskynning

Verkefnisnúmer:  607 8101
Síðast uppfært 8. 6. 2010

Framkvæmdum við nýtt hjúkrunarheimili að Suðurlandsbraut 66 er senn að ljúka. Í febrúar 2010 var auglýst eftir rekstraraðila og var tekið tilboði Grundar í rekstur nýja hjúkrunarheimilisins. Þann 18. júní 2010 undirrituðu Árni Páll Árnason félags- og tryggingamálaráðherra og Guðrún B. Gísladóttir forstjóri Grundar samning um rekstur nýja hjúkrunarheimilisins sem hlotið hefur nafnið Mörk – hjúkrunarheimili.

Þann 1. júlí 2010 skilaði verktakinn lyklum til FSR sem afhenti þá Grund. Eftir er þó að lagfæra ýmsa hluti, svo sem brunaviðvörunarkerfi, sjúkrakallkerfi og aðgangs- og öryggiskerfi, og verður það gert á næstu vikum. Verður húsnæðinu skilað fullfrágengnu með öllum búnaði. Miðað hefur verið við að móttaka heimilisfólks hefjist 1. ágúst í sumar og að heimilið verði komið í fullan rekstur 1. september 2010. Stefnt er að formlegri vígslu í byrjun september.

Verkkaupi er félags- og tryggingamálaráðuneytið og Framkvæmda- og eignasvið Reykjavíkurborgar. Umsjón hefur Framkvæmdasýsla ríkisins (FSR), verkefnastjórar FSR eru Sigurður Norðdahl og Gunnar Sigurðsson. Arkitekt er Yrki ehf., Landslag ehf. vinnur landslagshönnun, Mannvit hf. annast burðarþols- og lagnahönnun og Verkfræðistofa Jóhanns Indriðasonar ehf. hönnun raflagna. Verktaki er Jáverk ehf.

Frumathugun

Aðdragandi að verkefninu var hugmynd sjálfseignarstofnunarinnar Markarholts ehf. að byggja húsnæði fyrir aldraða við Suðurlandsbraut (Sogamýri) þar sem yrði fjölbreytt starfsemi, þar á meðal þjónustubúðir aldraðra og hjúkrunarheimili. Reistar voru þjónustuíbúðir en verkkaupar ákváðu að sjá um að reisa hjúkrunarheimilið.

Árið 2004 var mat heilbrigðisráðuneytisins að þörf væri á 250 nýjum hjúkrunarrýmum í Reykjavík. Viðræður við Markarholt leiddu til þess að ráðuneytið og Reykjavíkurborg ákváðu að annast framkvæmdir við hjúkrunarheimilið. Ákveðið var að nýta fyrirliggjandi frumteikningar og semja við fyrri hönnuði um fullnaðarhönnun hjúkrunarheimilisins.

Til að koma af stað og flýta framkvæmdum var árið 2006 ákveðið að bjóða sérstaklega út jarðvinnu í þeim tilgangi að flýta framkvæmdum. Náði sú framkvæmd til þess að skipta um jarðveg í hússtæðinu og að hluta til í bílastæðum. Var jarðvinnan boðin út og er framkvæmdum við það verkefni lokið, sjá verkefnið Hjúkrunarheimilið við Suðurlandsbraut 66, jarðvinna.

Áætlunargerð

Eins og fyrr segir hafði Markarholt ehf. annast að hluta undirbúning. Deiliskipulagsvinna hefur þróast og hafa lóðir verið aðgreindar fyrir þjónustuíbúðirnar (Suðurlandsbraut 58-64) og hjúkrunarheimilið (Suðurlandsbraut 66). Aðkoma bíla að lóðunum verður samnýtt og er frá Suðurlandsbraut. Aðalinngangur og vörumóttöku verður vestanmegin við húsið.

Hjúkrunarheimilið sem byggt verður er nýbygging þar sem verða 110 hjúkrunarrými auk 3 hjúkrunarrýma fyrir skammtímavistun. Öll rými hjúkrunarheimilisins sem eru aðgengileg vistmönnum eru hönnuð með tilliti til þarfa hreyfihamlaðra.

Byggingin er á fjórum hæðum ofanjarðar og með kjallara sem er að hluta til niðurgrafinn. Samkvæmt aðaluppdráttum er fyrirkomulag starfseminnar á einstökum hæðum í húsinu eftirfarandi:

Í kjallara eru skrifstofur/ stjórnun og móttaka, matsalur sjúkra- og iðjuþjálfun, hárgreiðslu- og fótaaðgerðarstofa, búningsherbergi starfsfólks, geymslur, sorp og tæknirými. Á 1., 2. og 3. hæð eru 30 hjúkrunarrými á hverri hæð. Þar af má sameina fjögur hjúkrunarrými í tveggja herbergja hjúkrunarrými. Á hverri hæð er borðstofa og setustofur, fylgirými og skrifstofa deildarstjóra. Á 4. hæð eru 20 hjúkrunarrými, borðstofur og setustofur, fylgirými, sjúkrabað og skrifstofa deildarstjóra svo og reykingarherbergi. Gert er ráð fyrir að 4. hæðin verði í upphafi geðdeild með 10 rýmum og að öðru leyti fyrir einstaklinga með minnissjúkdóma. Einnig er gert ráð fyrir að ein af hverjum þrem einingum á hverri hæð verði fyrir minnisjúka.

Brúttóflötur hjúkrunarheimilisins er 7.687,5 m² en brúttórúmmál 28.938,5 m³.

Fjármálaráðuneytið heimilaði útboð framkvæmdanna 26. febrúar 2008 á grundvelli umsagnar FSR. Fjármögnunaráætlun gerir ráð fyrir að Reykjavíkurborg greiði 30% af heildarkostnaði og 70% af heildarkostnaði verði greidd af Framkvæmdasjóði aldraðra og af fjárlögum.

Verkleg framkvæmd

Framkvæmdirnar voru auglýstar til útboðs á EES (Evrópska efnahagssvæðinu) 9. mars 2008.

Í útboðsgögnum segir meðal annars:

Um er að ræða nýtt hjúkrunarheimili að Suðurlandsbraut 66 í Reykjavík. Búið er að skipta um jarðveg í hússtæðinu og að hluta til í bílastæðum. Jarðvinna í þessu útboði er fylling undir stoðveggi og grunnplötur, fylling að húsi og undir sökkla 1. hæðar að hluta og jarðvinna vegna lagna utanhúss.

Byggingin er staðsteypt og einangruð að utan og klædd með álplötum og stálplötum úr Cortem stáli. Hluti útveggja eru með sjónsteypuáferð. Loftaplötur eru að stórum hluta til eftirspenntar. Þök og þaksvalir eru flöt með einangrun ofan á þakdúk. Þaksvalir og þök eru hellulögð en þök einnig með malarfargi, jarðvegi og gróðri. Þaksvalir og lóð eru að hluta til með snjóbræðslukerfi. Gluggar og útihurðir eru úr áli og gleri en einnig úr stáli.

Frágangur innanhúss er með staðsteyptum veggjum og súlum og léttum veggjum úr gipsplötum á blikkgrind. Veggir eru málaðir eða flísalagðir og hluti af innveggjum með veggjaklæðningum. Hluti af innveggjum eru glerveggir í timburkörmum og hreyfanlegir flekaveggir. Allar innihurðir eru harðplastklæddar timburhurðir í timburkörmum. Steypt loft eru að stórum hluta til klædd með niðurteknum loftum úr gips- og glerullarplötum. Gólf eru lögð með dúk, flísum og gólfmottum. Handrið úr stáli og gleri eru í byggingunni innan- og utanhúss. Fastur búnaður og innréttingar eru hönnuð fyrir sérhæfða starfsemi hjúkrunarheimilis. Tvær lyftur til sjúkraflutninga eru í byggingunni. Í hluta af hjúkrunarrýmum eru loftfest brautarkerfi til flutnings notanda innan hjúkrunarrýmis.

Byggingin er hönnuð samkvæmt verkfræðiráðgjöf um hljóðvist og brunahönnun, bæði innan- og utanhúss. Hitakerfi er ofnakerfi og gólfhitakerfi í blautrýmum. Vatnsúðakerfi tengt brunaviðvörunarkerfi og vélrænt loftræsikerfi eru í byggingunni. Raflagnabúnaður og -kerfi eru hönnuð fyrir sérhæfða starfsemi hjúkrunarheimilis. Bílastæði og aðkomusvæði eru á norðvesturhluta lóðarinnar og aðkoma eingöngu frá Suðurlandsbraut. Bílastæði eru malbikuð með kantsteini og merkt með máluðum línum. Meðfram hjúkrunarheimilinu eru hellulagðar gangstéttar, stígar og dvalarsvæði auk grassvæða inn á milli. Lok framkvæmdatíma samkvæmt útboðsgögnum er 4. febrúar 2010.

Tilboð voru opnuð 29. apríl 2008. Tilboð eftir yfirferð voru 14 talsins, sjá www.fsr.is/Utbod/Nidurstodur. Tekið var tilboði Jáverks ehf. 23. maí 2008 (staðfesting 3. júní 2008) og hefur verktaki hafið verkið.

Framkvæmdir hófust í júní 2008.

Framkvæmdum við nýtt hjúkrunarheimili að Suðurlandsbraut 66 er senn að ljúka. Í febrúar 2010 var auglýst eftir rekstraraðila og var tekið tilboði Grundar í rekstur nýja hjúkrunarheimilisins. Þann 18. júní 2010 undirrituðu Árni Páll Árnason félags- og tryggingamálaráðherra og Guðrún B. Gísladóttir forstjóri Grundar samning um rekstur nýja hjúkrunarheimilisins sem hlotið hefur nafnið Mörk – hjúkrunarheimili.

Þann 1. júlí 2010 skilaði verktakinn lyklum til FSR sem afhenti þá Grund. Eftir er þó að lagfæra ýmsa hluti, svo sem brunaviðvörunarkerfi, sjúkrakallkerfi og aðgangs- og öryggiskerfi, og verður það gert á næstu vikum. Verður húsnæðinu skilað fullfrágengnu með öllum búnaði. Miðað hefur verið við að móttaka heimilisfólks hefjist 1. ágúst í sumar og að heimilið verði komið í fullan rekstur 1. september 2010.

Meðfylgjandi myndir eru frá framkvæmdatíma. Stefnt er að formlegri vígslu í byrjun september 2010 sem verður kynnt á þessum vef með myndum af fullbúnu húsi.

Aðgengisvottun

Aðgengisvottun Forgangur 1 og 2



Aðalvalmynd


Aukaval


Aukaval

Borgartúni 7A - 105 Reykjavík - Sími 569 8900 - Bréfsimi 569 8901


Leit

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi