Kennaraháskóli Íslands, frágangur lóðar
Verkefniskynning þessi er úrdráttur af skilamati sem var gefið út í maí 2010. Gerð er grein fyrir lóðarframkvæmdum við Kennaraháskóla Íslands, nú Háskóli Íslands, Menntavísindadeild. Unnið var við framkvæmdir 1. áfanga árið 2003 og 2. áfanga á árunum 2005 til 2006.
Lóðarframkvæmdirnar náðu til 1. og 2. áfanga lóðarfrágangs umhverfis nýbygginguna Hamar kennslumiðstöð og nýtt mötuneyti, einnig til lóðarfrágangs við eldri byggingar til að bæta aðgengi. Lóðin í heild er um 36 þúsund fermetrar en þessir áfangar náðu til um 17 þúsund fermetra lóðarsvæða.
Verkkaupi var menntamálaráðuneytið. Framkvæmdasýsla ríkisins hafði umsjón með verkefninu fyrir hönd verkkaupa. Við lóðarfrágang 1. áfanga var verkefnisstjóri FSR Jón H. Gestsson við áætlunargerð og verklega framkvæmd. Við lóðarfrágang 2. áfanga var verkefnastjóri FSR Sigurjón Sigurjónsson við áætlunargerð og verklega framkvæmd og við gerð skilamats Magnús K. Sigurjónsson.
Frumathugun
Við nýbyggingu kennslumiðstöðvarinnar Hamars var þörf á bílastæðum og öðrum lóðarfrágangi. Þá var einnig þörf á að tengja lóðarsvæði nýbyggarinnar við lóðarsvæði eldri bygginga og bæta frágang víðar á lóðinni. Frumathugun var gerð í nóvember 1999.
Lóð KHÍ liggur við Stakkahlíð að vestan, að Háteigsvegi að norðan og að lóð kirkju Óháða safnaðarins sem er á horni fyrrnefndra gatna. Þá nær lóð KHÍ að mörkum nágrannalóða við Bólstaðarhlíð.
Meginhugmynd hönnuða var skýr aðkoma að nýbyggingunni frá norðri með stíg beint út frá aðalinngangi. Þar yrði góð aðkoma fótgangandi og farartækja frá Háteigsvegi. Þá var áhersla á að komið yrði upp torgi við skólann til útivistar, Háskólatorgi, og stefnt að því að þar það yrði skjólgott, vandað og vel búið svæði til útivistar í beinum tengslum við nýjan matsal skólans. Ákveðið var að skipta lóðarframkvæmdunum í tvo áfanga og gert ráð fyrir að þeir yrðu unnir sitt hvort sumarið.
Áætlunargerð
Áætlunargerð byggðist á niðurstöðu frumathugunar. Lóðarframkvæmdunum var skipt í tvo áfanga og var fullnaðarhönnun unnin fyrir framkvæmdaáfangana unnin í tveimur lotum. Tekið var tillit til aðgengis fatlaðra í allri hönnuninni.
1. áfangi náði til lóðarfrágangs norðan við Hamar þar með talinn stígur að nýjum aðalinngangi og bílastæði sitt hvorum megin við hann. Áhersla var á vandaðan frágang og lóðarbúnað við stíginn og við jaðar hans eru bekkir, hlaðnir veggir úr grágrýti og fánastengur sem setja svip á svæðið. Á svæði suðaustan við Hamar var lóðarhönnun með hólalandslagi og tilheyrði jarðvinnan áfanganum en frágangur síðari áfanga.
2. áfangi náði til hönnunar lóðarfrágangs á því sem eftir var að framkvæma, til Háskólatorgsins og tengingar þess við önnur svæði, einnig dvalarsvæðis við bókasafn, bílastæðis suðvestan við Hamar og að frágangs suðaustan við Hamar. Hönnun Háskólatorgsins, sem er á skjólgóðum stað mót suðri, gerði ráð fyrir steinlagðri verönd með steinhleðslum úr tilhöggnu grágrýti, trébekkjum við jaðar torgsins og runnabeðum. Tenging milli torgsins og suðursvæðisins gerði kröfur vegna hæðarmismunar sem er um fjórir metrar og gengið var frá landhalla með traustum, steinsteyptum stoðveggjum.
Garðahönnun ehf. sá um hönnun lóðar og voru aðalhönnuðir Björn Jóhannsson og Einar Birgisson, landslagsarkitektar. VSB ehf. verkfræðistofa sá um hönnun burðarþols og lagna vegna lóðarfrágangs.
Heildarkostnaðaráætlun FSR vegna 1. áfanga lóðarframkvæmda, í júlí 2003, var samtals 43,0 m.kr. (milljónir króna). Heildarkostnaðaráætlun FSR vegna 2. áfanga lóðarframkvæmda, í maí 2005, var samtals 45,2 m.kr.
Verkleg framkvæmd
1. áfangi var boðinn út og þann 5. september 2003 var tekið tilboði Mottós ehf. að fjárhæð 35.315.087 krónur sem er 1,6% yfir kostnaðaráætlun. 2. áfangi var boðinn út og tekið var tilboði EP vélaleigu og Grásteins ehf. 7. júlí 2005 að fjárhæð 40.015.000 krónur sem var 0,8% yfir kostnaðaráætlun.
Framkvæmdir 1. áfanga í heild gengu áfallalaust og ekki urðu tafir þrátt fyrir frostkafla í lok október og byrjun nóvember. Magntölur jarðvinnu reyndust ónákvæmar, sérstaklega varð mikil aukning á uppúrtekt og tilflutningi efnis, grúsarfyllingu. Við 2. áfanga fóru frmakvæmdir hægt af stað vegna ónógs aðgangs verktaka að verkstað og skorti á gögnum til útsetningar. Ýmsar hönnunarbreytingar voru þegar í upphafi framkvæmda fyrirsjáanlegar. Magntölur jukust mikið, einkum við fleygun og tafir urðu á verkinu.
Eftirlit með framkvæmdunum við 1. áfanga fyrir FSR hafði Fjarhitun hf. Verklokaúttekt fór fram 12. desember 2003. Við 2. áfanga hafði eftirlit fyrir FSR VST hf., eftirlitsmenn voru Gauti Kjartan Gíslason og Peter W. Jessen. Verklokaúttekt vegna áfangans fór fram 18. ágúst 2006. Lokaúttekt byggingarfulltrúans í Reykjavík vegna framkvæmda við lóðarfrágang 1. og 2. áfanga í heild fór fram 14. maí 2008.
Skilamat
Í samantekt og niðurstöðum skilamatsins er gerður samanburður við hliðstæðar framkvæmdir og metinn árangur framkvæmdarinnar. Lóðarframkvæmdir við Kennaraháskólann, sem náðu til 17.000 fermetra, kostuð ualls 2.000 krónur á fermetra án búnaðar miðað við byggingarvísitölu 100 í júlí 1987. Tekið var til samanburðar dæmi um lóðarframkvæmda við Skógarhlíð 6, lóð sem er um 3.000 fermetrar að stærð, þar sem kostnaður var 4.477 krónur á fermetra á fyrrnefndu verðlagi. Samanburðurinn telst hagstæður fyrir lóðarframkvæmdir við KHÍ 1. og 2. áfanga.
Heildarkostnaður á verðlagi hvers árs var 111,4 m.kr.. Áætlað var að samningsverk 1. áfanga kostaði samtals 43,0 m.kr. og raunkostnaður þess á sama verðlagi var 45,1 m.kr. það er 5% hærri. Áætlað var að samningsverk 2. áfanga kostaði samtals 45,2 m.kr. og raunkostnaður þess á sama verðlagi var 59,7 m.kr. það er 32% hærri. Magnaukning í verkinu varð 17,8%, aukaverk voru 4,0% en viðbótarverk 3,9%. Magnaukning stafaði að verulegu leyti af því að magntölum var ábótavant í hönnunargögnum, sérstaklega á fleygun á klöpp í 2. áfanga. Þar sem samanburður við önnur verk er hagstæður er heildarmat á árangri framkvæmdarinnar í fjárhagslegu tilliti þó góður.
Lóðarframkvæmdirnar teljast einnig hafa tekist vel hvað varðar starfræna og útlitlega þætti. Málefni fatlaðra voru vel leyst. Verktakar skiluðu verkinu með góðum frágangi. Vel heppnað umhverfið er án vafa skólanum til framdráttar. Í heild tókust framkvæmdirnar vel.