Háskólinn á Akureyri, kennslu- og fyrirlestrarými


Háskólinn á Akureyri, kennslu- og fyrirlestrarými

 Verkefniskynning

Verkefnisnúmer:  602 0923
Síðast uppfært 27. 9. 2010

Nýbygging Háskólans á Akureyri, kennslu- og fyrirlestrasalir, var vígð laugardaginn 28. ágúst 2010 við hátíðlega athöfn. Háskólinn bauð alla gesti velkomna og meðal þeirra sem heiðruðu samkomuna og fluttu ávarp voru Herra Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands og Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra. Að lokinni vígsluathöfn var opið hús í nýja húsnæðinu þar sem var lifandi tónlist, veitingar og fjölbreytt dagskrá, kynning á starfsemi háskólans og skemmtun fyrir börnin.

Uppbygging Háskólans á Akureyri hófst fyrir nærri aldarfjórðungi og er nýbyggingin 4. áfangi og markar tímamót þar sem öll kennsla og rannsóknir við þekkingarsamfélag Háskólans á Akureyri mun nú fara fram á Sólborgarsvæðinu. Nýbyggingin, eða byggingarnar, eru samtals um 2.400 fermetrar að stærð. Þar eru fyrirlestrasalir og hátíðarsalur og milli þeirra forsalur. Fyrirlestrasalirnir eru búnir öflugum tæknibúnaði sem bæta meðal annars aðstöðu til fjarnáms. Hátíðasalurinn tekur allt að 500 manns í sæti. Forsalurinn er mikilvæg miðstöð fyrir háskólalífið, þar verða upplýsingaskjáir, setrými og aðstaða til ýmissa uppákoma. Húsnæðið er allt hið glæsilegasta en við hönnun þess var lögð áhersla á léttleika, birtu og tengsl rýma.

Verkkaupi er Háskólinn á Akureyri fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið. Umsjón með framkvæmdum hefur Framkvæmdasýsla ríkisins, verkefnastjóri hjá FSR er Sigurður Hlöðversson. Arkitekt er Gláma-Kím Arkitektar Laugavegi 164 ehf., Almenna verkfræðistofan hf. vann burðarþols- og lagnahönnun, Raftákn ehf. hannaði raflagnir. Verktaki er Tréverk hf.

Frumathugun

Uppbygging á húsnæði Háskólans á Akureyri hefur fylgt skipulagi háskólasvæðisins sem grundvallað var á niðurstöðu samkeppni um heildarskipulag skólans. Lokið er þrem fyrstu áföngum framkvæmdanna. Frumathugun vegna 4. áfanga nær til þeirra bygginga sem á skipulaginu voru fyrirhugaðar fyrir kennslu- og fyrirlestrarými. Með áfanganum er leitast við að leysa þá húsnæðisþörf sem nú er aðkallandi vegna fjölgunar nemenda með fyrirlestrasölum fyrir allt að 200-250 nemendur í einu, auk minni fyrirlestrasala, kennslurýma og fjölnotarýma.

Skipulagið hefur tekið minniháttar breytingum við úrvinnslu og er nú eins og fram kemur á afstöðumynd 4. áfanga þar sem byggingar Háskólans á Akureyri merktar með bókstöfum. Nýbyggingar 4. áfanga eru merktar með bókstöfunum M, N, O, P og T. Nýbyggingin mun tengjast núverandi tengigangi T á öllum hæðum. Bygging T er tengigangur, bygging M mun hýsa kennslustofur og fyrirlestrarrými. Bygging O mun hýsa forsal við fyrirlestrarrými og hátíðarsal á fyrstu hæð, snyrtingar og þjónusturými í kjallara. Þá mun bygging N hýsa aðalaðkomu gesta að háskólabyggingunni og hópaðstöðu á efri hæð og í bygging P verður hátíðasal á fyrstu hæð og hópherbergi á annarri hæð.

Niðurstaða frumathugunar vegna 4. áfanga var að leysa húsnæðisþörfina með fyrrnefndum hætti. Áhersla var á kennslurými í áfanganum en upphaflega var gert ráð fyrir blöndu af kennslu- og skrifstofuhúsnæði. Fjölgun kennslurýma mun losa tímabundið um rými sem í dag nýtast til kennslu en henta betur fyrir gagnasmiðju og stoðþjónustu. Þá eru í 4. áfanga fjölnotarými sem nýtast mun staðar- og fjarnemum sem aðstaða til sjálfsnáms, hópvinnu eða kennslu. Þá er í þessum áfanga eins og þeim fyrri gert ráð fyrir að lóðarfrágangur fylgi viðkomandi byggingum.

Áætlunargerð

Eins og fyrr segir var 4. áfangi hluti af upprunalegu skipulagi. Áfanginn var hannaður af sömu ráðgjöfum og fyrri áfangar. Arkitekt er Gláma Kím Arkitektar Laugavegi 164 ehf., Almenna verkfræðistofan hf. vann burðarþol og lagnahönnun. Elfa hf. annaðist brunahönnun og Landslag ehf. hannaði lóðarfrágang. Raftákn ehf. hannaði raflagnir.

Á aðalteikningum kemur fram að í nýbyggunni eru fyrirlestrarsalir og hátíðarsalur auk smærri kennslurýma. Núverandi húsnæði Háskólans er 6.095,7 fermetrar Stærð þessa áfanga er 2.361,2 fermetrar og stærð alls 8.456,9 fermetrar.

Fletir hæða í nýbyggingunni eru rétthyrningar, tengigangur sem fletirnir raðast á og flötur meðfram honum. Starfseminni er komið fyrir á hæðum byggingarinnar með eftirfarandi hætti. Í kjallara er forrými, neðri hluti tveggja fyirlestrasala og tæknirými í tengigangi. Á 1. hæð er forsalur í miðju, fyrirlestrasalir um 100 fermertrar hvor, hátíðarsalur tæplega 250 fermetrar að stærð og tengigagnur með forrými við inngang. Á 2. hæð er stigi í loftrými milli rýma. Kennslurýminu má skipta í þrjár 50-60 fermetra kennslustofur. Hópherbergi eru þrjú, um 37 fermetrar hvert og að auki hópaðstaða við tengigang, um 80 fermetrar.

Heildarkostnaðaráætlun FSR, á verðlagi í júní 2007, var 640,0 m.kr. (milljónir króna) fyrir allt verkið og er þá meðtalinn kostnaður við ráðgjöf, umsjón og eftirlit, framkvæmdakostnaður svo og opinber gjöld og rekstur á framkvæmdatíma svo og vegna búnaðar og listskreytingar. Í áætluninni er framkvæmdakostnaður áætlaður 530,0 m.kr. og er þá innifalinn áætlaður kostnaður vegna verðlagsbreytinga og aukaverka.

Í fjármögunaráætlun er gert ráð fyrir að fjármögnun komi frá fjárveitingum til menntamálaráðuneytis af fjárlögum árin 2007, 2008 og 2009.

Verkleg framkvæmd

Á aðalteikningum 4. áfanga kemur fram að nýbyggingarnar eru steinsteyptar, einangraðar að utan og klæddar múrkápu. Á byggingunum er lítið hallandi þak, einangrun og dúkur eða pappi ofan á steypta plötu. Gólf- og þakplötur eru ýmist úr forsteyptum einingum eða staðsteyptar. Plasteinangrun er undir gólfplötum á fyllingu. Gluggar og hurðir eru úr álkerfi. Innveggir og loftaklæðningar eru gipsplötur á blikkgrind. Upphitun verður með gólfhita og ofnum. Loftræsing er í öllum byggingum. Loftræsisamstæður eru staðsettar í tæknirými í kjallara. Sjálfvirkt vatnsúðakerfi og viðurkennd brunaviðvörunarkerfi verða í byggingunni.

Í útboðsgögnum 4. áfanga kemur fram að áfanginn nær til þess að reisa bygginguna og innrétta svo og til lóðarfráfrágangs Háskólatorgs og bílastæða. Helstu magntölur eru:

Uppgröftur 16.000 m³ (rúmmetrar), fylling 9.000 m³, mót 8.000 m² (fermetrar), bendistál 113.000 kg (kílógrömm), steypa 2.100 m³, holplötur 850 m².

Framkvæmdir við 4. áfanga Háskólans á Akureyri voru boðnar út og tilboð opnuð 14. ágúst 2007 (opnunartíma var breytt). Þar sem tilboð voru of há voru framkvæmdirnar boðnar út að nýju. Gert var þá ráð fyrir rýmri framkvæmdatíma, það er til maí 2010. Tilboð voru opnuð 25. september 2007. Tilboði Tréverks hf. var tekið og var það 689.573.392 krónur en það var 124,29% af kostnaðaráætlun sem var 554.800.779 krónur.

Meðfylgjandi myndir eru teknar á framkvæmdatíma en myndir af fullbúnu húsi verða settar hér á siðuna síðar.

Vígsla

Nýbygging Háskólans á Akureyri, kennslu- og fyrirlestrasalir, var vígð laugardaginn 28. ágúst 2010 við hátíðlega athöfn. Háskólinn bauð alla gesti velkomna og meðal þeirra sem heiðruðu samkomuna og fluttu ávarp voru Herra Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands og Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra. Að lokinni vígsluathöfn var opið hús í nýja húsnæðinu þar sem var lifandi tónlist, veitingar og fjölbreytt dagskrá, kynning á starfsemi háskólans og skemmtun fyrir börnin.

Aðgengisvottun

Aðgengisvottun Forgangur 1 og 2



Aðalvalmynd


Aukaval


Aukaval

Borgartúni 7A - 105 Reykjavík - Sími 569 8900 - Bréfsimi 569 8901


Leit

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi