Sjávarútvegshús, endurinnrétting 5. og 6. hæðar


Sjávarútvegshús, endurinnrétting 5. og 6. hæðar

 Verkefniskynning

Verkefnisnúmer:  501 0950
Síðast uppfært 15. 3. 2009

Framkvæmdum er lokið við innréttingu 5. hæðar í Sjávarútvegshúsi þar sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið flutti inn. Verkefnið náði til þess að innrétta alla 5. hæðina og minni breytingar eru gerðar á 6. hæðinni.

Verkkaupi er forsætisráðuneytið. Umsjón með framkvæmdum hefur Framkvæmdasýsla ríkisins, verkefnastjóri hjá FSR er Hafsteinn Steinarsson. Arkitekt er Gunnar Guðnason, hönnun burðarþols og lagna annaðist Verkís ehf. Verktaki er Topp verktakar ehf.

Frumathugun

Frumathugun var gerð hjá FSR í janúar 2008 fyrir forsætisráðuneyti sem fer með húsnæðismál Stjórnaráðs Íslands og var unnin eftir verklagsreglum fjármálaráðuneytis um tilhögun frumathugunar. Í frumathuguninni kemur fram að sjávarútvegsráðuneytið og landbúnaðarráðuneytið hafi verið sameinuð í eitt ráðuneyti, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið frá og með 1. janúar 2008. Margir kostir fylgja því að sameinað ráðuneyti sé staðsett á einum stað. Talið var fýsilegt og í samræmi við stefnu sem mótuð hefur verið um starfsemi Stjórnarráðs Íslands að leitast við að staðsetja sameinað ráðuneyti á stjórnarráðsreit en þar hafa reyndar bæði ráðuneytin verið staðsett, sjávarútvegs¬ráðuneytið á 6. hæð í Sjávarútvegshúsinu við Skúlagötu 4 og landbúnaðaráðuneytið við Sölvhólsgötu. Í forathugun var kannað hvort hentaði að endurinnrétta 5. hæðina í Sjávarútvegshúsinu fyrir landbúnaðarráðuneytið og tengja hæðirnar saman. Forsendan var að Hafrannsóknarstofnun gæti rýmt 5. hæðina og gert var ráð fyrir að hæðin yrði innréttuð í samráði við nýja notendur. Niðurstaða frumathugunar var að 5. og 6. hæð í sjávarútvegshúsinu henti vel sem lausn á húsnæðismálum ráðuneytis sjávarútvegs og landbúnaðar. Samkvæmt frumathugun er áætlaður framkvæmdatími 6 mánuðir og gert ráð fyrir að landbúnaðarráðuneytið flytji í september 2008. Heildarkostnaður á stigi frumathugunar, á verðlagi í nóvember 2007, var áætlaður um 180 milljón krónur +/- 35 milljón krónur.

Áætlunargerð

Í áætlunargerð var fylgt niðurstöðum frumathugunar. Meginhluti verkefnisins var unnið sem útboðsverk en til að flýta framkvæmdum var niðurrif á 5. hæð unnið áður og var hæðin um það bil fokheld við upphaf útboðsverks. Þar sem ekki var unnt að rýma 6. hæð vegna framkvæmdanna voru einnig breytingar á ráðherragangi, rafkerfi á 6. hæð og fleira unnið aðgreint frá útboðsverki. Náðu útboðsgögn til þess að endurinnrétta alveg 5. hæðina og einnig að vinna nokkra verkhluta á 4. og 6. hæð. Í stórum dráttum felur útboðsverkið í sér að innrétta nýjar skrifstofur á 5. hæð á um 700 fermetrum. Gólf verða lögð línóleum gólfdúk samfellt yfir alla hæðina og hengiloft sett upp. Settir verða upp innveggir úr gifsi og veggeiningar úr öryggisgleri. Klætt er á súlur og lagnastokka með gifsi. Settar eru upp hurðir úr eik og fastar innréttingar. Á 6. hæð koma nokkrar eldvarnarhurðir og hringstigi milli hæða og á 4. hæð er sett upp loft í fundarherbergi og nokkrir aðrir verkhlutar. Sett verður upp loftræsisamstæða í risi og nýtt loftræsikerfi á 5. hæð ásamt hita- og kælikerfi og á 5. og 6. hæð frárennslis- og neysluvatnslagnir. Nýtt rafkerfi verður sett upp 5. hæð, þar með talið lagnaleiðir rafkerfa og uppsetning lágspennu-, lýsingar-, fjarskipta- og öryggiskerfa.

Umsjón með framkvæmdum hefur Framkvæmdasýsla ríkisins, verkefnastjóri hjá FSR er Hafsteinn Steinarsson. Arkitekt er Gunnar Guðnason. Valdís Vífilsdóttir hannaði að hluta innréttingar, það er eldhúsinnréttingar og móttökuborð. Hönnun burðarþols, lagan og raflagna annaðist Verkís ehf. (áður Fjarhitun verkfræðistofa og Rafteikning hf., sem sameinuðust í eina stofu).


Verkleg framkvæmd

Framkvæmdir voru boðnar út og voru auglýstar í apríl 2008. Í útboðsgögnum kemur meðal annars fram eftirfarandi. Verkkaupi mun hafa lokið að mestu niðurrifi núverandi innréttinga, loftræsilagna og rafkerfa þegar verk verktaka hefst. Verktaki skal gæta sérstaklega að lögnum sem liggja á 5. hæð hússins en þjóna öðrum hæðum. Gæta skal vel að því að kerfi annarra hæða haldi fullri virkni á meðan á verkinu stendur. Rafkerfi á 6. hæð verður unnið af starfsmönnum Sjávarútvegshúss. Vakin er athygli á því að starfsemi verður á öðrum hæðum hússins.

Helstu magntölur eru eftirfarandi:
Gólfdúkur 633 m² (fermetrar), loftaklæðningar 620 m², gifsveggir 188 m (metrar), glerveggir 28 stk. (stykki), hurðir 43 stk., spörslun og málun 1245 m², rafstrengir 11 km (kílómetrar), lampar 265 stk., rennur, stigar og bakkar 400 m, frárennslislagnir 31 m, vatnslagnir 201 m, hitalagnir 28 m, kantaðir stokkar 495 m og sívalir stokkar 333 m.

Þá kemur fram að verkinu skuli vera að fullu lokið eigi síðar en 31. október 2008.

Tilboðin voru opnuð hjá Ríkiskaupum. 29. apríl 2008. Tekið var tilboði Topp verktaka ehf. 26.maí 2008.

Verktakinn, opp verktakar ehf. lauk framkvæmdum á 5. hæð og síðan á 6. hæð. Lokaúttekt FSR var gerð 13. febrúar 2009.

Aðgengisvottun

Aðgengisvottun Forgangur 1 og 2



Aðalvalmynd


Aukaval


Aukaval

Borgartúni 7A - 105 Reykjavík - Sími 569 8900 - Bréfsimi 569 8901


Leit

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi