Fjölbrautaskólinn við Ármúla, viðbygging
Framkvæmdir við viðbygginggu við Fjölbrautaskólann í Ármúla eru komnar vel á veg. Var framkvæmdunum skipt í tvo áfanga og er fyrri áfanganum skilað nú í ágúst 2010. Í þeim áfanga er fjölnotasalur ásamt eldhúsi og kjallara. Einnig gert ráð fyrir að verktaki skili af sér 1. og 2. hæð vesturálmu og klári aðkomu að fjölnotasal, hljóðver og skrifstofu húsvarðar í eldra húsnæði. Í síðari áfanganum er meðal annars kennsluálma sem þegar er uppsteypt.
Verkkaupar eru mennta- og menningarmálamálaráðuneytið og Reykjavíkurborg. Framkvæmdasýsla ríkisins annast umsjón og eftirlit, umsjón fyrir FSR hefur VSÓ Ráðgjöf ehf., verkefnisstjóri hjá FSR er Guðbjartur Á. Ólafsson, fyrir hann í sumar Gíslína Guðmundsdóttir. Hönnuðir eru Tendra (áður Skapa & Skerpa arkitektar) í samvinnu við Á stofunni - arkitektar, burðarþolshönnun annaðist TÓV Verkfræðistofa ehf. (= Teiknistofan Óðinstorgi Verkfræðistofa) , lagnir og loftræsingu hannaði Mannvit hf., rafkerfi hannaði EFLA hf. og brunahönnun vann VSI Öryggishönnun og ráðgjöf (VSI =Verkfræðistofa Snorra Ingimarssonar). Verktaki er Spöng ehf.
Frumathugun
Við frumathugun vann Arkís þarfagreiningu sem miðaðist við viðbyggingu en með viðauka við yfirlýsingu ríkis og borgar var ákveðið að bæta við sérstakri deild sem tekur að hluta við framhaldsmenntun fatlaðra sem farið hefur fram í Safamýrarskóla. Síðan var haldin samanburðarsamkeppni arkitekta sem var opnuð 14. október 2006 og í framhaldi af því samið við arkitekta á Á stofunni arkitektar um hönnun viðbyggingarinnar.
Forsendur verkefnisins voru meðal annars þörf á að leysa húsnæðisskort og gera breytingar til að koma á móts við fatlaða og að auka sveigjanleika og hagkvæmni í starfseminni. Þörf hefur verið á sal til fjölbreyttrar notkunar, auknu húsnæði til kennslu með nýrri viðbyggingu. Gert var ráð fyrir að í framhaldi af viðbyggingu yrði nauðsynlegt að gera breytingar á núverandi húsrými vegna breyttar nýtingar þess.
Niðurstaðan var að byggja viðbyggingu sem samanstæði annars vegar af fjölnotasal og stjórnunarálmu og hins vegar kennsluálmu. Meginfyrirkomulag var ákveðið eftirfarandi: Fjölnotasalurinn er sunnan við núverandi skólabyggingu. Stjórnunarálman er L-laga og hýsir meðal annars kennarastofur og er með tengingu yfir í fjölnotasal. Í kennsluálmu verður aðstaða fyrir fjölfatlaða með stoðrýmum, þar með talin sundlaug, og þar verða ýmis konar kennslustofur og líkamsræktarsalur með tilheyrandi stoðrýmum.
Áætlunargerð
Eins og fyrr segir eru verkkaupar mennta- og menningarmálamálaráðuneytið og Reykjavíkurborg. Umsjón fyrir FSR hefur VSÓ Ráðgjöf ehf., tengiliður Aðalsteinn Sigurþórsson. Verkefnisstjóri hjá FSR er Guðbjartur Á. Ólafsson. Fasteeignir ríkissjóðs munu annast rekstur byggingarinnar.
Hönnuðir eru Skapa & Skerpa arkitektar, tengiliður Jóhann Sigurðsson (áður á Á stofunni arkitektar), burðarþolshönnun annaðist TÓV Verkfræðistofa ehf. (= Teiknistofan Óðinstorgi Verkfræðistofa), tengiliður Kristján S. Guðmundsson, lagnir og loftræsingu annast nú Mannvit hf. (áður VGK Hönnun), tengiliður Guðmundur Hilberg Jónsson. Rafkerfi hannar EFLA hf., (áður RTS Verkfræðistofa), tengiliður Sigurður Grímsson og brunahönnun vann VSI (=Verkfræðistofa Snorra Ingimarssonar) Öryggishönnun og ráðgjöf, tengiliður Inga Hersteinsdóttir.
Við hönnun var ákveðið að gólf fjölnotasalar skyldi liggja nokkru neðar en núverandi kjallari en loftplata salarins yrði í svipaðri hæð og gólf 2. hæðar. Fjölnotasal verður hægt að skipta í tvennt með felliveggjum. Í tengslum við salinn eru eldhús og geymslurými. Á lóðinni framan við fjölnotasalinn er komið fyrir brekku og flöt næst salnum sem nota má sem áhorfendasvæði og sem svið. Ýmsar breytingar stærri og smærri verða gerðar í núverandi byggingu, einkum þar sem nýtt og eldra mætist og fylgir framkvæmdunum rif og lagfæringar, komið er fyrir lyftu í núverandi stigabyggingu , núverandi kennslustofum verður breytt í bókasafn og fleira.
Byggingarlýsing:
Burðarvirki er að mestu leyti staðsteypt, það er allir útveggir, burðarveggir innanhúss, súlur og bitar. Yfir kjallara er staðsteypt loftplata en yfir 1. og 2. hæð kúluplötur. Þær eru með forsteyptum 8 cm (sentimetra) botni ásamt innsteyptum kúlum en efri hluti staðsteyptur. Í fjölnotasal eru holplötur með ásteypulagi, einangrun og torfi. Ofan á þakplötur annarrar hæðar kemur rakavarnarlag, einangrunarplast og þakdúkur sniðskorin með þakhalla 1:40. Frágangur utanhúss miðast er við að steinsteyptir útveggir verði einangraðir að innan og múrhúðaðir en að utan eru veggirnir að hluta óklæddir (sjónsteypa) og að hluta með læstri málmklæðningu, þar með talinn fjölnotasalur. Allir hefðbundnir gluggar í húsinu eru framræstir álgluggar, settir í eftir uppsteypu hússins. Frágangur innanhúss er aðallega með léttum innveggjum úr blikkstoðum, loft kerfisloft úr hljóðdeyfiplötum. Gólf eru ýmist dúklögð, flísalögð eða máluð. Innréttingar byggingainnar eru ýmist sérsmíðaðar eða koma tilbúnar, innrétting í aðaleldhúsi er úr stáleiningum. Innihurðir eru harðplastlagðar og kantlímdar með harðviði.
Stærð byggingarinnar er um 4.100 fermetrar.
Ráðgjöf til verkkaupa varðandi viðbótarverk veitir starfshópur Reykjavíkurborgar og ríkisins um uppbyggingu framhaldsskóla í borginni.
Verkleg framkvæmd
VSÓ Ráðgjöf ehf. annaðist fyrir hönd verkkaupa útboð framkvæmdanna sem boðnar voru út í mars 2008. Um var að ræða lokað útboð á EES í kjölfar forvals þar sem eftirtöldum aðilum sem tóku þátt í forvali var gefinn kostur á að taka þátt í útboðinu: 1. ANS ehf, 2. Eykt hf, 3. Húsbygg ehf, 4. Ístak hf, 5. Ris ehf., 6. Spöng ehf., 7. Sveinbjörn Sigurðsson hf.
Tekið var tilboði Spangar ehf. í maí 2008, um 817 milljónir króna.
Skóflustunga var tekin 22. maí 2008. Verktakinn hóf framkvæmdir í framhaldi af því. Ákveðið var að skipta framkvæmdunum í tvo áfanga og var fyrri áfanganum skilað í ágúst 2010. Í þeim áfanga er fjölnotasalur ásamt eldhúsi og kjallara. Einnig gert ráð fyrir að verktaki skili af sér 1. og 2. hæð vesturálmu og klári aðkomu að fjölnotasal, hljóðver og skrifstofu húsvarðar í eldra húsnæði.
Í síðari áfanganum er meðal annars kennsluálma sem þegar er uppsteypt og eru fyrirhuguð verklok fyrir haustönn 2011.