Eirberg, utanhússviðgerðir
Lokið er framkvæmdum við utanhúsviðgerðir á eldri hluta Eirbergs við Eiríksgötu 34 í Reykjavík þar sem Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands er til húsa. Húsið er þriggja hæða steinhús á kjallara. Eldri hlutinn er upphaflega steindur með marmarasalla að utan og áttu framkvæmdirnar að ná til viðgerða á múr og steiningu og að skipta um glugga og útihurðir. Vegna umfangsmeiri galla en búist var við, var ákveðið að bæta við verkið og eftir viðgerðir á sprungum voru allar húshliðar endursteinaðar. Lítur húsið nú vel út og er mikil ánægja með framkvæmdina hjá starfsfólki og nemendum Hjúkrunarfræðideildar HÍ.
Verkkaupi er Háskóli Íslands. Ráðgjöf annaðist Bygginga- og tæknideild Háskóla Íslands. Verkefnistjóri var Guðbjartur Á. Ólafsson, FSR. umsjón með eftirliti hafði Valþór Sigurðsson byggingarstjóri HÍ og daglegt eftirlit hafði Jóhann T. Egilsson hjá Ferli verkfræðistofu. Verktaki við framkvæmdina var Múr og mál ehf., það er Múr- og málningarþjónustan Höfn ehf.
Frumathugun
Frumathugun var unnin af Línuhönnun hf. Þar kom fram að þörf var á endurbótum utanhúss og endurnýjun glers. Niðurstaðan var að auk múrviðgerða skyldi skipt út gluggum og útihurðum.
Áætlunargerð
Gerður var verkkaupasamningur milli menntamálaráðuneytisins og FSR. Var Hákon Örn Arnþórsson hjá Bygginga- og tæknideild Háskóla Íslands var tengiliður verkkaupa við FSR og síðan Valþór Sigurðsson byggingarstjóri Háskóla Íslands. Ráðgjöf annaðist Hákon Örn Arnþórsson hjá Bygginga- og tæknideild Háskóla Íslands og Valþór Sigurðsson.
Heildarkostnaðaráætlun FSR, í janúar 2008, var 47,2 m.kr, þar af vegna verkframkvæmdar 38,3 m.kr.
Verkleg framkvæmd
Fjármálaráðuneytið veitti heimild til útboðsins 2007. Framkvæmdirnar voru boðnar út vorið 2007 og tilboð opnuð 12. júní 2007. Tvö tilboð bárust en þau voru of há og var tilboðum hafnað 28. júní 2007. Endurútboð var auglýst 13. janúar 2008.
Í útboðsgögnum segir meðal annars eftirfarandi. Eirberg er þriggja hæða steinhús á kjallara, byggt í tveimur áföngum. Eldri hlutinn er upphaflega steinaður með marmarasalla að utan. Verkið felst í því að háþrýstiþvo alla múrfleti. Síðan er gert ráð fyrir að gert verði við alla múrfleti og sprungur sem skemmdar eru með hefðbundnum múrviðgerðum. Skemmdir liggja aðallega í steypuskilum, lausum köntum og vatnsbrettum og einnig er töluvert um lausa fleti. Skipta skal um alla glugga og hurðir og þétta meðfram þeim. Verkkaupi leggur til glugga og hurðir, kemur þeim á staðinn í lokuðum gámi.
Helstu magntölur samkvæmt útboðsgögnum: Múrviðgerðir - filtun 30 m² (fermetrar), múrviðgerðir á köntum 40 m (metrar), viðgerðir á sprungum 200 m, viðgerðir á ryðpunktum 40 stk. (stykki), háþrýstiþvottur, 1.243 m², steyptar svalir og skyggni 35 m², brot og pússning við gluggakarma 787 m, vatnsbretti 240 m og gluggaskipti 207 stk. Samkvæmt útboðsgögnum skyldi verkinu vera að fullu lokið eigi síðar en 31. ágúst 2008.
Tilboð í endurútboði voru opnuð þriðjudaginn 29. janúar 2008. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 37.349.350 krónur. Tilboði verktakans Múr og Mál ehf. (Múr- og málningarþjónustan Höfn ehf.), að fjárhæð 41.956.427 krónur, 112,34% af kostnaðaráætlun, var tekið þann 15. febrúar 2008.
Framkvæmdir hófust í febrúar 2008. Byggingastjóri var Valþór Sigurðsson hjá Bygginga- og tæknideild Háskóla Íslands. Verkkaupi lagði til alla glugga og hurðir en verktaki sá um ísetningu þeirra og þéttingu með þeim. Í ljósi þess hvað múrviðgerðir reyndust umfangsmiklar, og að á húshliðum reyndust vera nokkrir lekastaði um sprungur, var ákveðið að endursteina alla veggi eftir að gert hafði verið við lekasprungur með inndælingu. Vegna viðbótarverks var skilatími verksins færður til 15. október 2008 og fór lokaúttekt fram þann dag og verkinu að fullu lokið þrátt fyrir erfiða tíð til utanhúsvinnu. Áætlaður heildarkostnaður við lok framkvæmdar (lokaúttekt) er um 57 m.kr.