Þjóðleikhúsið, utanhússviðgerðir
Í útboði er hluti utanhússviðgerða Þjóðleikhúss. Endurbætur hússins að innan áttu sér einkum stað á árunum 1989 - 1991 en nokkrum innanhússþáttum var þá ólokið og hófst vinna við að ljúka þeim árið 2004 og náði til úrbóta á brunavörnum og aðgengi fatlaðra að og í húsinu. Utanhússviðgerðir hófust árið 2006 og er einn áfangi þeirra nú í útboði en settir voru upp verkpallar og unnar steypuviðgerðir á undanförnu ári.
Verkkaupi er Fasteignir ríkissjóðs fyrir Þjóðleikhúsið. Ráðgjafi er Línuhönnun hf. Framkvæmdasýsla ríkisins hafði umsjón með verkinu, verkefnisstjórar eru Þráinn Sigurðsson aðstoðarforstjóri FSR og Gunnar Torfason verkfræðingur.
Frumathugun
Á árunum 1989 til 1991 var unnið að umfangsmiklum endurbótum á Þjóðleikhúsinu, svokallaðri Endurreisn I. Að henni lokinni varð hlé á framkvæmdum en ýmsum verkþáttum var þá ólokið, svo sem frágangi gestasvæða á 1. hæð, úrbótum í ferlimálum hreyfihamlaðra og eldvarnarmálum svo og endurbótum utanhúss. Endurreisn II hófst árið 2004 og náði 1. áfangi til úrbóta á brunavörnum og aðgengi fatlaðra að og í húsinu. Lögð var fram greinargerð Gunnars Torfasonar verkfræðings um framkvæmdirnar en hann var kunnugur fyrri framkvæmdum við húsið.
Frumathugun unnu Tinna Gunnlaugdóttir þjóðleikhússtjóri fyrir Þjóðleikhúsið og Óskar Valdimarsson forstjóri FSR. Heildarkostnaðaráætlun FSR á stigi frumathugunar, á verðlagi í maí 2006, er 256 m.kr. vegna utanhússviðgerða.
Þjóðleikhúsið var fært í vörslu Fasteigna ríkissjóðs sem verkkaupa og leigusala. Ákveðið var að Endurreisn II, 2. áfangi næði til endurbóta utanhúss. Vegna viðhaldsframkvæmda Þjóðleikhússins utanhúss óskuðu Fasteignir ríkissjóðs, sem verkkaupi fyrir Þjóðleikhúsið, eftir leyfi til að hefja áætlunargerð og framkvæmdir.
Áætlunargerð
Fjármálaráðuneytið veitti leyfi til áætlunargerðar og framkvæmda við utanhússviðgerðir Þjóðleikhússins að fenginni umsögn FSR.
Umsjón með framkvæmdunum, fyrir hönd FR (Fasteigna ríkissjóðs), hefur Framkvæmdasýsla ríkisins. Verkefnisstjóri er Þráinn Sigurðsson, aðstoðarforstjóri FSR og Gunnar Torfason verkfræðingur. Tengiliður FR er Snævar Guðmundsson. Línuhönnun hf. annast hönnunarráðgjöf, tengiliður Guðni Örn Jónsson.
Verkpallar voru fullhannaðir til útboðs í maí 2006. Í útboðsgögnum eru sérstakar kröfur til verktaka um snyrtilegt vinnusvæði, vörslu og aðgengi að húsinu og sem minnsta truflun af hávaða. Verkpallar séu 12 til 17 metrar á hæð og 1,5 metrar á breidd. Nákvæm lýsing er á verkpöllunum, verklýsingakaflar eru um stoðir, palla, knekti, skástífur, stiga, festur, net, girðingu og hlífðarganga.
Steypuviðgerðir voru hannaðar til útboðs árið 2006. Í útboðsgögnum er gerð grein fyrir steypuviðgerðum á útveggjum sem eru allmiklar. Verlýsingar eru lagðar fram fyrir margar mismunandi viðgerðir, svo sem múrviðgerð á flötum, lausri pússningu á flötum, á köntum og lausri pússningu á köntum, á sprungum með múrfyllingu eða með teygjanlegri fyllingu, svo og með hreinsun og ryðvörn á járnum í múr.
Múrhúðun og endursteining var fullhönnuð til útboðs í maí 2007. Í útboðsgögnum er gerð grein fyrir múrhúðun og endursteiningu. Verkkaupi leggur til allt efni, það er steinkurl, sem kemur í eins tonna sekkjum, sement í pokum, sand (basaltsand) í lausu, svartan lit og loftblendi. Gerðar eru miklar kröfur um útlit og vinnugæði og verktaki skal benda á vandlega og faglega unnin verk manna sem annast munu steininguna auk þess að sýndar verði prufur. Eins og fram kemur í verklýsingu er um að ræða gamalt og virðulegt hús. Ákveðið var að efni í endursteiningu útveggja yrði sérstaklega unnið fyrir verkkaupa í þessum tilgangi og fengið á friðuðum svæðum til að gera mætti við húsið í upprunalegri mynd.
Gluggum var víða ábótavant, þeir hafa víða skemmst, meðal annars beyglast og múr springur út frá festingum þeirra. Þeir eru úr messing, festir með járnvinklum, svartir á lit. Mikil áhersla er á að reynt verði að varðveita upprunalegu gluggana og þar sem ekki var unnt að gera við glugga var áhersla lögð á að nýir gluggar yrðu sem líkastir fyrri gluggum. Verða þeir af vandaðri gerð, úr áli með svartri rafhúð. Þar sem sumir gluggar eru í nothæfu ástandi var ákveðið að þeir verði notaðir að hluta til og verða upprunalegir gluggar á framhlið Þjóðleikhússins og á turni áfram varðveittir.
Heildarkostnaðaráætlun FSR á stigi áætlunargerðar vegna utanhússviðgerðanna í heild hefur áætluð um 333,0 m.kr. á verðlagi í maí 2007 og er þá meðtalin ráðgjöf, framkvæmdakostnaður, umsjón og eftirlit, svo og opinber gjöld. Framkvæmdakostnaður nær til utanhússframkvæmda við verkpalla, steypu- og þakviðgerðar, glugga og glerjunar, steiningarefnis svo og múrhúðunar og endursteiningar.
Verkleg framkvæmd
Utanhússframkvæmdirnar voru boðnar út í þremur útboðum. Verkkaupi er Fasteignir ríkissjóðs. Umsjón með framkvæmdunum hefur Framkvæmdasýsla ríkisns, verkefnastjóri er Þráinn Sigurðsson aðstoðarforstjóri FSR. Ráðgjafi er Línuhönnun hf. Í maí 2006 veitti fjármálaráðuneytið, að fenginni umsögn FSR, heimild til útboðs vegna 2. áfanga, það er utanhússviðgerða.
Verkpallar voru boðnir út í apríl 2006. Í útboðsgögnum vegna verkpalla segir meðal annars að ljúka skuli framkvæmdum 30. júní 2006. Framkvæmdirnar felast í því að reisa timburpalla við Þjóðleikhúsið. Helstu magntötur voru stoðir 5.185 m (metrar), pallar 1.450 m og hlífðargangur 425 m² (fermetrar). Tilboð í verkpalla voru opnuð 22. maí 2006. Kostnaðaráætlun verkframkvæmdar var 11.600.250 kr. (krónur). Tekið var tilboði Magnúsar og Steingríms ehf. þann 22. júní 2006 að fjárhæð 20.984.870 kr. Verktaki hóf framkvæmdir í júní 2006.
Steypuviðgerðir voru boðnar út í maí 2006. Í útboðsgögnum vegna steypuviðgerða segir meðal annars að ljúka skuli framkvæmdum að fullu 25. júní 2007. Helstu magntölur eru brot á steypu og endursteypa 155 m³ (rúmmetrar), mót 640 m² (fermetrar), bendistál 9.360 kg (kíló), innlímd tengijárn 4.070 stk (stykki), múrviðgerðar á flötum 600 m², múrviðgerðir á köntum 450 m (metrar), múrviðgerðir á sprungum 1.450 m, viðgerð á ryðpunktum 2.000 stk. og viðgerðir á ryðguðum járnum 750 m. Tilboð í steypuviðgerðir voru opnuð 19. júní 2006. Kostnaðaráætlun verkframkvæmdar var 74.700.000 kr. (krónur). Tekið var tilboði Magnúsar og Steingríms ehf. þann 27. júlí 2006 að fjárhæð 82.464.000 kr. Verktaki hóf framkvæmdir í júní 2006. Ísetningu glugga annast verktakinn, gluggar eru lagðir til af verkkaupa, smíðaðir hjá HS Hansens, söluaðili er Bykó ehf. Þakklæðningu annast einnig sami verktaki.
Múrhúðun og endursteining á útveggjum Þjóðleikhússins var boðin út í maí 2007. Í útboðsgögnum segir meðal annars að ljúka skuli framkvæmdum 1. október 2007. Helstu magntölur eru háþrýstiþvottur 3.200 m² (fermetrar), múrhúðun 4.000 m² og steining 4.200 m². Framkvæmdum skal vera lokið 1. október 2007. Tilboð í múrhúðun og steiningu verða opnuð hjá Ríkiskaupum 23. maí 2007 klukkan 11.00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.