Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Suðurálma 0. hæð


Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Suðurálma 0. hæð

 Verkefniskynning

Verkefnisnúmer:  608 6202
Síðast uppfært 15. 3. 2007

Framkvæmdum er að ljúka við innréttingar 0. hæðar Suðurálmu Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri (FSA). Suðurálman er fimm hæða bygging ásamt kjallara og í útboðsverkinu var innréttuð þessi hæð, sem er alls um 890 fermetrar og gengið frá lóð sunnan við álmuna. Hæðin verður nýtt fyrir barna- og unglingageðdeild, einnig meinafræðideild, svo og iðju- og sjúkraþjálfun og kennslustofu.

Verkkaupi er heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið. Framkvæmdasýsla ríkisins hefur umsjón með framkvæmdunum, verkefnastjóri er Sigurður Norðdahl, FSR. Arkitekt innréttinganna er AVH ehf. (Arkitekta- og verkfræðistofa Hauks ehf.), Verkfræðistofa Sigurðar Thorarenssen hf. annaðist hönnun burðarþols og lagna, Raftákn ehf. hönnun raflagna. Verktaki er Timbursmiðjan. Eftirlit fyrir FSR hafði Verkfræðistofa Norðurlands.


Frumathugun

Framkvæmdir við innréttingar við Suðurálmu Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri eiga sér alllanga sögu. Þessi áfangi FSA hefur verið í byggingu í allmörg ár og er álman enn að hluta aðeins fokheld. Fyrirliggjandi framkvæmd felst í að innrétta hluta byggingarinnar, svonefnda 0. hæð, fyrir sjúkrahússtarfsemi.

Nýtingaráætlun vegna Suðurálmu Fjórðungssjúkrahúss Akureyrar var unnin 1993. Þótt ýmislegt hafi tekið breytingum frá þeirri áætlun eru meginatriði lítið breytt varðandi skipulag, megingerð mannvirkja og ýmsa tæknilega þætti. Unnin var byggingaráætlun sem varð grundvöllur framkvæmda fram að fokheldisstigi. Tafir urðu á að húsið yrði innréttað en í desember 2000 tók barnadeild FSA formlega til starfa á 3. hæð. Enn urðu tafir á að innrétta bygginguna en leitað var leiða til fjármögnunar meðal annars með samstarfi við Íslenska erfðagreiningu.

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið skipaði byggingarnefnd vegna undirbúnings að innréttingu barnadeildar sem starfaði til ársins 2001 þegar ráðuneytið fól FSA að ákvarða nýtingu Suðurálmu. Stefnt var að því að nýta hæð 0 fyrir barna- og unglingageðlækningar, starfsemi sem hafði verið á hrakhólum og brýnt að ráða þar bót á. Einnig var stefnt að því að nýta hæðina fyrir aðra starfsemi. Það á við um meinafræðideildina sem hefur búið við mikil þrengsl og brýn þörf hefur verið á betri aðstöðu auk þess sem fyrri staðsetning hennar hefur staðið annarri starfsemi verulega fyrir þrifum. Sama má segja um sjúkra- og iðjuþjálfun. Þá var einnig nauðsynlegt að huga að því að FSA er nú skilgreint sem háskólasjúkrahús og því fylgja tilteknar skyldur, m.a. kennsluaðstaða. Þrengt var að annarri starfsemi til að koma henni fyrir. Þannig var lögð vinna í að gjörnýta rýmið með breyttri hönnun og nýju fyrirkomulagi á hæðinni.

Niðurstaða um nýtingu hæðarinnar, sem er um 900 fermetrar, var að þar yrði komið fyrir barna- og unglingageðdeild, einnig meinafræðideild, svo og iðju- og sjúkraþjálfun og kennslustofu. Leitað var til Arkitekta- og verkfræðistofu Hauks ehf. um gerð frumuppdrátta nýs fyrirkomulags. Þar er nú miðað við tveggjagangakerfi í stað einsgangskerfi eftir miðri álmu og á sjúkradeildum var horfið frá því að hafa tvö rúm í hverri sjúkrastofu eins og sýnt var á eldri teikningum.

Áætlunargerð

/ Ráðgjöf
Hönnun á fyrri áföngum Suðurálmu á árinu 1994 annaðist Húsameistari ríkisins, Teiknistofan Form hf., Verkfræðistofan Raftákn hf. og Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen hf. Endurskoðun arkitektahönnunar var falin Arkitekta- og verkfræðistofu Hauks ehf. (AVH ehf.), Verkfræðistofu Sigurðar Thorarenssen hf. og Raftákni ehf. Við endurskoðun var gerð úttekt á fyrri teikningum af innra skipulagi 0., 1., og 2. hæðar en áður hafði einungis komið til framkvæmda á 3. hæð Suðurálmu fyrir barnadeild Fjórðungssjúkrahús Akureyrar.

/ Hönnun
Um að ræða hönnun innréttinga á svokallaðri 0. hæð Suðurálmu fyrir meinafræðideild, iðju- og sjúkraþjálfun, og aðstöðu fyrir barna- og unglingageðdeild svo og kennsluaðstöðu. Hæðin er á um 890 fermetrar gólffleti. Nýtt fyrirkomulag var aðlagað burðarvirki, lögnum og raflögnum sem fyrir voru. Sjúkrastofur, rannsóknarrými, meðferðarrými og skrifstofur eru við útveggi. Í miðjurými í tveggjagangakerfi eru vaktrými, móttökur, snyrtingar, geymslur og böð og fleiri hliðarrými, aðgengileg frá báðum göngunum. Milli súlna koma glerkerfisveggir og á enda miðjurýma bogaveggir við móttökurými, allt aðlagað að starfsemi á viðkomandi hæð. Á 0. hæð, sem nú kemur til framkvæmda að innrétta, er öðrum ganginum að stórum hluta sleppt þar sem það rými nýtist deildum sem þurfa stór rými.

Um frágang innanhúss segir meðal annars í hönnunargögnum að innveggir verði trefjagifsveggir og glerkerfisveggir, loft eru kerfisloft úr stáli með harðpressaðri steinull. Innihurðir og innréttingar eru klæddar mahognyspæni en hurðakarmar úr áli með yfirfelldu dyrafóðri, sumar hurðir þó úr gleri eða stáli. Gólf eru lögð vinyldúk.

/ Starfsemi
Fyrirkomulag starfsemi í efri kjallara (hæðar 0) er eftirfarandi: Barna- og unglinga- geðlækningar verða á um 170 fermetrar austast á hæðinni en fyrst um sinn mun starfsmaður sjúkraflutningaskólans hafa þar skrifstofu og þar verður einnig talmeinafræðingur. Iðju- og sjúkraþjálfun eru ætlaðir um 170 fermetrar til sinna nota, staðsetning á miðri hæðinni.. Rannsóknadeild verður með liðlega 50 fermetrar í norðvesturhlutanum. Meinafræðinni er ætlaður staður í suðvesturhluta hæðarinnar á tæplega 120 fermetrar. Kennslustofa verður liðlega 50 fermetrar í miðjum suðurhluta hæðarinnar, starfsmannaaðstaða í suðvesturhorni hæðarinnar er rúmlega 20 fermetrar. Það sem eftir er á hæðinni fer í snyrtingar, tölvurými og ganga.

Fjármálaráðuneytið óskaði eftir umsögn FSR um áætlunargerð og var henni lokið í júní 2004. Heildarkostnaðaráætlun FSR frá júní 2004 nam 125 milljónum króna, þar með talinn áætlaður kostnaður við ráðgjöf, umsjón og eftirlit, verkframkvæmd, opinber gjöld og rekstur á framkvæmdatíma,og búnað og listskreytingar. Áætluð fjármögnun byggingarinnar var af fjárlagaliðum og frá rekstri Fjórðungssjúkrahúss Akureyrar.

Verkleg framkvæmd

Framkvæmd við innréttingar á efri kjallara (0. hæð) suðurálmu Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri (FSA) að Eyrarlandsvegi var boðin út í júlí 2004. Innréttuð er hæð í núverandi byggingu sem er fimm hæða ásamt kjallara með múrhúðun utan á steypta veggi og einangrun að innan. Hæðin er um 890 fermetrar að flatarmáli.

Verkið felst meðal annars í uppsetningu nýrra léttra veggja, glerveggja, hurða, felliveggja, innréttinga, loftaefna, lagningu gólfdúka og málningar. Lagning frárennslis-, neysluvatns-, hita-, loftræsi-, vatnsúðakerfis-, gas- og snjóbræðslulagna ásamt hreinlætistækjum er innfalið í útboðinu ásamt öllum raflögnum, lampabúnaði og stjórnkerfi. Innifalið í verkinu er auk þess að færa glugga við verönd við norðurhlið, saga hurðagöt og fjarlægja glugga í álmuskilvegg að tengiálmu og stækka þar með rými álmunnar. Þá er einnig er um að ræða vinnu við að stækka bílastæði sunnan suðurálmu og ganga frá lóð næst suðurhlið álmunnar.

Helstu magntölur eru: Léttir veggir 640 fermetrar, glerkerfisveggir 60 fermetrar, niðurtekin loft 865 fermetrar, dúkalögn 850 fermetrar, málun 2200 fermetrar, hurðir 30 stykki, flekaveggir 6,2 fermetrar, pípulagnir 1100 metrar, hreinlætistæki 25 stykki, loftstokkar 400 metrar, strengir 2400 metrar, strengir Cat 5 4600 metrar og lampar 400 stykki.

Verkið var auglýst til útboðs sunnudaginn 11. júlí 2004 og tilboð opnuð 11. ágúst 2004. Þann 3. september 2004 var tekið tilboði Timbursmiðjunnar að upphæð kr.86.209.838 sem var 88,4% af kostnaðaráætlun.

Áætlað er að verkið hefjist um mánaðarmótin sept.-okt. 2004 og að því verði lokið í apríl 2005 en skiladagur á bílastæði sunnan suðurálmu verði í október 2004.

Framkvæmdir hófust í lok september 2004 og lokaúttekt fór fram 18. október 2005. Heildarkostnaðaráætlun í október 2005 nam um 130 m.kr., þar af um 93 m.kr. framkvæmdakostnaður og viðbótarverk.

Aðgengisvottun

Aðgengisvottun Forgangur 1 og 2



Aðalvalmynd


Aukaval


Aukaval

Borgartúni 7A - 105 Reykjavík - Sími 569 8900 - Bréfsimi 569 8901


Leit

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi