Landspítali - háskólasjúkrahús við Hringbraut, stækkun gjörgæslunnar
Framkvæmdum er lokið við nýja viðbyggingu við aðalbyggingu Landspítala - háskólasjúkrahús við Hringbraut. Um er að ræða tveggja hæða viðbyggingu við gömlu aðalbygginguna að vestanverðu, alls um 234 fermetrar og er stækkun gjörgæslu á efri hæð.
Verkkaupi var Landspítali - háskólasjúkrahús fyrir hönd heilbrigðisráðuneytisins. FSR hafði umsjón og verkefnastjóri hjá FSR var Þórir Jónsson. Arkitektar voru THG arkitektar, hönnun burðarþols annaðist Verkís ehf. (áður VST hf.), lagnahönnun vann Mannvit hf. og raflagnahönnun Verkfræðistofa Jóhanns Indriðasonar ehf.
Frumathugun
Forsendur verkefnisins voru meðal annars þær að þörf var á stækkun gjörgæslunnar sem ekki varð frestað þar til fyrirhuguð nýbygging á Landspítalalóð tæki við. Formleg frumathugun var ekki gerð. Nauðsynlegt var að stækkun gjörgæslunnar yrði í beinum tengslum við gjörgæsludeildina í aðalbyggingu spítalans. Var stefnt að viðbyggingu við aðalbygginguna sem byggð yrði ofan á núverandi kjallararými, sunnan við aðalinngang.
Áætlunargerð
Verkkaupi var Landspítali - háskólasjúkrahús, fyrir hönd heilbrigðisráðuneytisins. FSR hafði umsjón og verkefnastjóri hjá FSR við áætlunargerð var Ingólfur Aðalbjörnsson og við verklega framkvæmd Þórir Jónsson. Tengiliður fyrir verkkaupa var Aðalsteinn Pálsson hjá LSH, skrifstofu tækni og eigna. Arkitektar voru THG arkitektar. Hönnun burðarþols annaðist Verkís ehf. (áður VST hf.), lagnahönnun vann Mannvit hf. og raflagnahönnun Verkfræðistofa Jóhanns Indriðasonar ehf.
Á aðalteikningu kemur fram að viðbyggingin er byggð ofan á kjallararými aðalbyggingar sem hýsir MRI tæki. Aðalbyggingin er gömul og viðbygginguna mætti fjarlægja ef færa ætti bygginguna í upprunalegt horf. Gert var því ráð fyrir að byggja léttbyggingu eftir því sem tæknilegar forsendur vegna viðkvæmra tækja leyfa.
Á 2. hæð viðbyggingarinnar er gólf jafnhátt og í aðalbyggingu. Fyrirkomulag á þeirri hæð á aðalteikningu sýnir rými fyrir stafsemi gjörgæslu, það er hreinn lager, aðstaða deildarstjóra, funda- og kennsluaðstaða og tækjageymslu. Útgangur er frá hæðinni og útitröppur niður í inngarð og á það einnig við um 1. hæð. Á 1. hæð viðbyggingarinnar er einnig innanhússtenging við aðalbyggingu. Fyrirkomulag á þeirri hæð á aðalteikningu sýnir óinnréttað rými.
Byggingin skilast fullfrágengin að utan, neðri hæð frágengin, fullmáluð og með gólfefnum en án innveggja og innréttinga. Efri hæð skilast fullfrágengin með innveggjum, fullmáluð, með gólfefnum, lögnum og raflögnum.
Heildarkostnaðaráætlun FSR, í ágúst 2008, var 58,0 m.kr. , þar með talin ráðgjöf, verkframkvæmd (samningsgreiðslur og áætluð aukaverk), umsjón og eftirlit og gjöld á framkvæmdatíma.
Verkleg framkvæmd
Framkvæmdir voru boðnar út í september 2008. Í útboðsgögnum er byggingunni lýst á þessa leið.
Byggingin er 234 m² á tveimur hæðum. Á 1. hæð er byggingin úr forsteyptum einingum og á 2. hæð léttbygging úr timbri. Útveggir eru einangraðir að utan og klætt með sléttri álklæðningu. Þakið er klætt steindum þakdúk yst og öðru þakdúklagi þar undir ofan á krossviðsplötur, einangrað milli sperra og loft klætt gifsi. Milligólf er úr holplötum og skilveggir verða tvöfaldir gifsveggir.
Helstu stærðir og magntölur eru:
Forsteyptar einingar 95 m² (fermetrar)
Timburútveggir 100 m²
Timburþak 100 m²
Álklæðningar utanhúss 200 m²
Frágangur lofta 100 m²
Frágangur gólfa 200 m²
Raflagnir og annar frágangur 200 m²
Þá segir að verkinu skuli vera að fullu lokið eigi síðar en 15. apríl 2009.
Tilboð voru opnuð 7. október 2008. Tilboði verktakans K16 ehf. að upphæð 37.784.019 krónur, sem var 87,24% af kostnaðaráætlun, var tekið þann 29. október 2008.
Framkvæmdir voru unnar veturinn 2008 til 2009 og lauk þeim vorið 2009. Lokaúttekt FSR fór fram 4. maí 2009 og úttekt byggingarfulltrúa 22. júní 2009.