Nýtt háskólasjúkrahús, áætlunargerð
Í framhaldi af frumathugun Nýs háskólasjúkrahúss við Hringbraut , sem lauk í mars 2008, verður unnið að áætlunargerð verkefnisins á grundvelli frumathugunar. Stefnt er að hönnunarsamkeppni og að hönnun hefjist árið 2009.
Á fyrri verkefniskynningum FSR er stutt umfjöllun um deiliskipulag og frumathugun og á séstökum vefsiðum Landspítalans um Nýtt sjúkrahús er fjallað um verkefnið í heild.
Á vef Nýs hákólasjúkrahúss http://www.haskolasjukrahus.is er fjallað um verkefnið í heild og þar er meðal annars að finna ítarleg gögn um deiliskipulagið og áframhaldandi framvindu verkefnisins.