Á þessari síðu er listi verkefna fjármálaráðuneytis og stofnana þess; Undir flipanum Verkefni í vinnslu eru heiti verkefna og á því tengill á verkefniskynningu. Undir flipanum Verkefni sem er lokið eru í dálki Skilamat útgefin skilamöt (pdf skrár sem opnast í nýjum glugga). Frá og með árinu 2007 hafa verið gerðir úrdrættir skilamata til að auka aðgengi og er tengill á þau á heiti hvers verkefnis. Hægt er að raða efni töflunnar með því að smella á fyrirsagnir.
| Verkefnisnúmer | Heiti verkefnis / Verkefniskynningar | Staða | Verkefnastjóri |
|---|---|---|---|
| 509 5006 | Grensásvegur 9, 1. hæð, endurbætur | Framkvæmd lokið | Guðbjartur Á. Ólafsson |
| 533 0010 | Heilbrigðisstofnun Suðurlands Höfn Hornafirði, utan- og innanhússviðgerðir | Í framkvæmd | Björn Hallgrímsson |
| 609 2440 | Skattstofa Austurlands, leiguverkefni | Í framkvæmd | Guðbjartur Á. Ólafsson |
| 609 4320 | Tollstjórinn í Reykjavík, leiguhúsnæði | Framkvæmd lokið | Gunnar Sigurðsson |
| 609 6000 | Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins, vöruhús 3 og tengibygging | Framkvæmd lokið | Óskar Valdimarsson |
| 633 0024 | Tollstjórinn í Reykjavík, geymsluhúsnæði fyrir röntgenbifreið | Framkvæmd lokið | Róbert Jónsson |
| 633 0039 | Þjóðskrá, þarfagreining vegna nýs leiguhúsnæðis | Í frumathugun | Jón H. Ásbjörnsson |
| 633 0042 | Ríkisskattstjóri, sameining skattstofa | Í frumathugun | Jón H. Ásbjörnsson |
| 633 0043 | Bankasýsla ríkisins | Í frumathugun | Jón H. Ásbjörnsson |
|
|
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, leiguhúsnæði | Í frumathugun | Jón H. Ásbjörnsson |
| 633 4200 | Vegagerðin, leiguhúsnæði | Í framkvæmd | Róbert Jónsson |
Verkefniskynningu má skoða með því að fara á flipann Verkefni í vinnslu í línu viðkomandi verkefnis og smella á heiti verkefnisins þegar á því er tengill.
Verkefniskynning er myndskreytt greinargerð sem er jafnan gerð þegar verkefni er komið í framkvæmd, í stærstu verkefnum er verkefniskynning gjarnan gerð fyrr. Efst í verkefniskynningu er inngangur um nýjasta atburð og síðan er lýst hverju stigi opinberrar framkvæmdar, það er frumathugun, áætlunargerð, verklegri framkvæmd og skilmati. Leitast er eftir að uppfæra kynningarnar með reglubundnum hætti eftir því sem verkefnisstjórar leggja fram upplýsingar um verkefnið.
Skilamat verkefnis má skoða eða sækja með því að fara á flipann Verkefni sem er lokið í línu viðkomandi verkefnis og smella á útgáfumánuð skilamatsins.
Skilamat er greinargerð um opinbera framkvæmd sem yfirleitt hefur verið unnin að lokinni ábyrgðarúttekt, ári eftir lokaúttekt FSR. Skrár eru á pdf formi og eru nokkuð stórar því skilamötin eru myndskreytt.