Á þessari síðu er listi verkefna dóms- og kirkjumálaráðuneytis og stofnana þess; Undir flipanum Verkefni í vinnslu eru heiti verkefna og á því tengill á verkefniskynningu. Undir flipanum Verkefni sem er lokið eru í dálki Skilamat útgefin skilamöt (pdf skrár sem opnast í nýjum glugga). Frá og með árinu 2007 hafa verið gerðir úrdrættir skilamata til að auka aðgengi og er tengill á þau á heiti hvers verkefnis. Hægt er að raða efni töflunnar með því að smella á fyrirsagnir.
| Verkefnisnúmer | Heiti verkefnis / Verkefniskynningar | Staða | Verkefnastjóri |
|---|---|---|---|
| 606 0710 | Fangelsi Kvíabryggju, stækkun og breytingar | Framkvæmd lokið | Sigurður Norðdahl |
| 606 0720 | Fangelsi Akureyri, viðbygging og breytingar | Framkvæmd lokið | Hafsteinn Steinarsson |
| 606 0860 | Fangelsi Litla-Hrauni, viðbyggingar og breytingar | Í frumathugun | Lena Kadmark |
| 606 2600 | Lögreglustöð Höfn í Hornafirði, viðbygging og endurinnrétting | Í framkvæmd | Guðbjartur Á. Ólafsson |
| 606 3620 | Sýsluskrifstofur og lögreglustöð á Eskifirði, viðbygging og endurbætur | Framkvæmd lokið | Guðbjartur Á. Ólafsson |
| 633 0033 | Lögreglustöð á Neskaupstað, nýtt húsnæði | Í frumathugun | Björn Hallgrímsson |
| 633 0036 | Lögreglustjórinn á Suðurnesjum, leiguhúsnæði | Framkvæmd lokið | Róbert Jónsson |
| 633 0037 | Húsnæði undir fangelsi á vegum Fangelsismálastofnunar | Í framkvæmd | Jón H. Ásbjörnsson |
Verkefniskynningu má skoða með því að fara á flipann Verkefni í vinnslu í línu viðkomandi verkefnis og smella á heiti verkefnisins þegar á því er tengill.
Verkefniskynning er myndskreytt greinargerð sem er jafnan gerð þegar verkefni er komið í framkvæmd, í stærstu verkefnum er verkefniskynning gjarnan gerð fyrr. Efst í verkefniskynningu er inngangur um nýjasta atburð og síðan er lýst hverju stigi opinberrar framkvæmdar, það er frumathugun, áætlunargerð, verklegri framkvæmd og skilmati. Leitast er eftir að uppfæra kynningarnar með reglubundnum hætti eftir því sem verkefnisstjórar leggja fram upplýsingar um verkefnið.
Skilamat verkefnis má skoða eða sækja með því að fara á flipann Verkefni sem er lokið í línu viðkomandi verkefnis og smella á útgáfumánuð skilamatsins.
Skilamat er greinargerð um opinbera framkvæmd sem yfirleitt hefur verið unnin að lokinni ábyrgðarúttekt, ári eftir lokaúttekt FSR. Skrár eru á pdf formi og eru nokkuð stórar því skilamötin eru myndskreytt.