Hönnunarsamkeppni um gestastofu á Skriðuklaustri


Niðurstaða hönnunarsamkeppni um gestastofu að Skriðuklaustri í Vatnajökulsþjóðgarði

Þann 25. apríl 2008 lágu fyrir niðurstöður hönnunarsamkeppni um gestastofu að Skriðuklaustri. Hönnunarsamkeppnin var almenn, opin hönnunarsamkeppni sem FSR auglýsti fyrir hönd umhverfisráðuneytis og Vatnajökulsþjóðgarðs. Fjöldi tillagna í samkeppninni var 6.

Fyrstu verðlaun hlaut Arkís, höfundar Birgir Teitsson og Arnar Þór Jónsson. Önnur verðlaun fengu GASSA Arkitekter, Kaupmannahöfn, höfundar Guðni Tyrfingsson og Auður Alfreðsdóttir og þriðju verðlaun Kjartan Árnason og Haukur Þórðarson báðir í Danmörku og Árni Kjartansson, Reykjavík.Verðlaunafé fyrir 1. verðlaun var 2,5 milljónir króna, fyrir 2. verðlaun 1,0 milljónir króna og fyrir 3. verðlaun 0,5 milljónir króna.

Niðurstöður voru kynntar á Háskólatorgi síðastliðinn föstudag þar sem formaður dómnefndar, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, gerði grein fyrir hönnunarsamkeppninni og niðurstöðum dómnefndar og umhverfisráðherra, Þórunn Sveinbjarnardóttir, afhenti vinningshöfum verðlaun. Tillögur í hönnunarsamkeppninni voru til sýnis á Háskólatorgi Háskóla Íslands við Suðurgötu í Reykjavík 25. apríl til 10. maí 2008. Eftirfarandi eru vinningstillögur í hönnunarsamkeppninnni og umsagnir dómnefndar um þær.

Dómnefndarálit (22Mb):

Dómnefndarálit

 

Vinningstillögur:

 

Mynd 1. verðlaun

 

Tillaga 24141 

Arkís, höfundar Birgir Teitsson
og Arnar Þór Jónsson

 

1. verðlaun



Tillaga 1. verðlaun

 
Umsögn dómnefndar um tillöguna:

Úthugsuð og öguð tillaga. Aðkoma og tenging við útisvæði vel leyst. Byggingin situr vel í landinu. Fyrirkomulag opið og sveigjanlegt og rýmisnýting góð. Útlit formað af öryggi og nokkuð stórskorið. Álitamál með gluggasetningu (geil) meðal annars með tilliti til útsýnis. Hugmyndir um efnisval sannfærandi. Athyglisverðar og sannfærandi vangaveltur um hinar gestastofurnar. Framúrskarandi skýr og vel sett fram tillaga.

     

Tillaga 12111

GASSA Arkitekter, Kaupmannahöfn, Guðni Tyrfingsson og Auður Alfreðsdóttir

 

2. verðlaun

 
    Umsögn dómnefndar um tillöguna: 

Inntak tillögunnar er, að einfalt og fastmótað ytra form hýsi fjölbreytt innra rými sem leiði gesti um húsið. Styrkur tillögunnar er fólginn í vel útfærðum möguleikum á öllum þeim fjórum stöðum sem samkeppnin tekur til. Gluggasetning og uppbrot veggflata er góð og gefur byggingunni sterka ímynd. Veikleikar tillögunnar eru að innra skipulag er lokað og býður ekki upp á breytilega notkun á rýmum. Form byggingarinnar fellur ekki vel að landinu og tenging af svölum út í garð er ósannfærandi. Efnisnotkun er áhugaverð og byggingin er áferðafalleg. Tillagan er skýr og framsetning góð.

 

     

Tillaga 13245

Kjartan Árnason og Haukur Þórðarson, Danmörku og Árni Kjartansson, Reykjavík

3. verðlaun

          
   
Umsögn dómnefnda um tillöguna::

Meginhugmynd er skýr og einföld. Byggingin er stílhrein og innrými aðlaðandi. Grunnmyndir eru vel leystar en innra skipulag er nokkuð stíft og býður ekki upp á samnýtingu rýma. Aðkomuhlið er  fráhrindandi og hallandi veggfletir gefa byggingunni þungt yfirbragð. Stigatenging milli hæða er ósannfærandi og gríðarstórir glerfletir í tveggja hæða sýningarsal orka tvímælis. Framsetning góð.

   

Útboð samkeppninnar

Framkvæmdasýsla ríkisins, fyrir hönd umhverfisráðuneytisins og Vatnajökulsþjóðgarðs,  býður til opinnar hönnunarsamkeppni (framkvæmdasamkeppni) um gestastofu á Skriðuklaustri. Skilafrestur tillagna er 2. apríl 2008. Nánari upplýsingar er að finna í útboðsgögnum sem eru rafræn og verða aðgengileg á vef Ríkiskaupa. Útboðsgögnin verða einnig fáanleg á geisladisk á kr. 3.500 hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7C, 105 Reykjavík.

Vakin er athygli á því að Ríkiskaup hefur með höndum miðlun gagna í útboðinu. Aðgang að öðrum gögnum samkeppninnar en samkeppnislýsingu veita Ríkiskaup á www.rikiskaup.is


Samkeppnisgögn

Fylgiskjöl:

A Leiðbeiningar um hönnunarsamkeppni
B Frumathugun um gestastofur í Vatnajökulsþjóðgarði
C Skýrsla ráðgjafanefndar umhverfisráðuneytisins, nóvember 2006
D Tillaga að deiliskipulagi við Skriðuklaustur
F Jarðvegskönnun
G Þversnið í byggingarsvæði
H Upplýsingar um veðurfar fyrir Skriðuklaustur
I Leiðbeiningarit um um kaup á ráðgjöf
J Staðsetning Kirkjubæjarklaustur
K Staðsetning Höfn
L Form hönnunarsamnings
E Grunnkort 
Ljósmyndir: mynd 292, mynd 285, mynd 281, mynd 277, mynd 273, mynd 268
loftmynd 1, jgw skrá fyrir loftmynd 1
loftmynd 2, jgw skrá fyrir loftmynd 2

Meðfylgjandi jgw skrár eiga ekki að opnast sem myndir en verða að vera í sömu möppu og loftmyndirnar sem eru jpg skrár til að hægt sé að nota þær í cad teikniforritunum.

Fyrirspurnir (Inquiries)

 Senda fyrirspurn/ Send an inquiry: gisli@rikiskaup.is

Tímaáætlun

Opnunarfundur (Opening of tenders): 02.04.2008 kl.14:00.
Fyrirspurnarfrestur rennur út (Deadline for inquiries): 14.03.2008
Svarfrestur rennur út (Deadline for response to inquiries): 19.03.2008



Aðalvalmynd


Hjálpar valmynd


Fótur

Borgartúni 7A - 105 Reykjavík - Sími 569 8900 - Bréfsimi 569 8901


Leit

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi