Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ. Hönnunarsamkeppni


Útboðsnúmer: 14734   Verkefnisnúmer: 633 0034

Dagsetning opnunar: 10. mars 2010

Framkvæmdasýsla ríkisins, fyrir hönd mennta- og menningarmálaráðuneytisins og Mosfellsbæjar, býður til opinnar hönnunarsamkeppni (framkvæmdasamkeppni) um Framhaldsskólann í Mosfellsbæ. Um er að ræða um það bil 4.000 fermetra byggingu sem staðsett verður í miðbæ Mosfellsbæjar, nánar tiltekið við Háholt.

Tvö fyrirspurnartímabil eru í samkeppninni og lýkur því fyrra 13. janúar 2010. Skilafrestur tillagna er 10. mars 2010 fyrir klukkan 16.00 hjá Ríkiskaupum.

Veitt verða þrenn verðlaun að heildarupphæð 8 milljónir króna.

Samkeppnin fer fram í samvinnu við Arkitektafélag Íslands og er auglýst á EES.

Nánari upplýsingar er að finna í samkeppnislýsingu sem verður aðgengileg á vef Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is,  útboðsnúmer 14734. 

Samkeppnislýsing og ítargögn verða fáanleg á geisladiski þriðjudaginn 24. nóvember 2009, gegn framvísun staðfestingar á þátttöku og 3.500 króna greiðslu hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7C, 105 Reykjavík. Skrifstofan er opin virka daga frá klukkan 8.00 – 16.00.

Vakin er athygli á að til að fá ítargögn afhent hjá Ríkiskaupum þarf að framvísa staðfestingu á þátttöku. Þegar viðkomandi skráir sig á vef Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is útboðsnúmer 14734,  fær hann/hún senda staðfestingu á þátttöku í tölvupósti sem skal framvísa þegar gögn eru sótt.


til baka


Efnisyfirlit


Aukaval


Aukaval

Borgartúni 7A - 105 Reykjavík - Sími 569 8900 - Bréfsimi 569 8901


Leit

Built with LiSA .Net from Eskill