Útboð


Á vef Framkvæmdssýslu ríkisins eru upplýsingar um útboð framkvæmda á vegum stofnunarinnar. Upplýsingar um útboðin birtast einnig á vef Ríkiskaupa. Leitast er eftir á vef FSR að birta ítarlegar útboðsupplýsingar og auk þess eru mun ítarlegri upplýsingar um verkefnin undir Verkefni, einkum eftir að þau eru komin í framkvæmd. Á forsíðu eru flýtileiðir á þessar síður.


Auglýsingar

Á þessari síðu er listi með þeim útboðum sem eru í auglýsingu, þar eru útboðsnúmer Ríkiskaupa, hvaða dag tilboð verða opnuð og heiti verkefna. Þegar ýtt er á heiti verkefnisins birtist auglýsing útboðsins eins og hún birtist á vef Ríkiskaupa. Auglýsing fer af síðunni þegar tilboð eru opnuð. Fyrri auglýsingar eru til vinstri á síðunni.

Opnun tilboða

Á þessari síðu er listi sem sýnir útboð sem eru í opnun, þar eru útboðsnúmer og verknúmer, fram kemur hvaða dag tilboð voru opnuð og heiti verkefnis. Þegar ýtt er á heiti verkefnis birtast nöfn og tilboð allra bjóðenda eins og þau voru við opnun tilboða, einnig kostnaðaráætlun og hlutfall tilboða af kostnaðaráætlun. Opnunarfundir fara jafnan fram hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7C. Þegar tilboðin hafa verið yfirfarin fara upplýsingar um útboðin af þessum lista og eru þá á Niðurstöður útboða. Fyrri opnanir tilboða eru til vinstri á síðunni.

Niðurstöður útboða

Á lista yfir niðurstöður útboða eru útboðsnúmer og verknúmer, hvaða dag tilboði var tekið þegar það liggur fyrir, og heiti verkefnis. Þegar ýtt er á heiti á tilteknu útboði koma öll gild tilboð, það er nöfn bjóðenda og tilboð þeirra eftir yfirferð, kostnaðaráætlun og hlutfall tilboða af kostnaðaráætlun. Þegar það liggur fyrir kemur fram tilboði hvers hefur verið tekið og hvenær. Nýjustu niðurstöður útboða koma efst en raða má verkefnum að vild með því að ýta á dálkayfiskrfitir. Fyrri niðurstöður útboða eru til vinstri á síðunni.

Samkeppnir

Í töflunni er listi yfir hönnunarsamkeppnir í verkefnum á vegum FSR. Á heiti viðkomandi verkefnis er tengill á upplýsingar um viðkomandi samkeppni. Þegar samkeppni er í gangi er leitast við að hafa upplýsingar sem varða hvert stig á ferli samkeppninnar. Að lokinni samkeppni er tengill á niðurstöðu samkeppninnar / verkefniskynningu.



Aðalvalmynd


Hjálpar valmynd


Fótur

Borgartúni 7A - 105 Reykjavík - Sími 569 8900 - Bréfsimi 569 8901


Leit

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi