Leiðbeiningar til hönnuða um útboðsgögn
Á þessari síðu eru sértækar leiðbeiningar til hönnuða um útboðsgögn, pdf eða word skrár sem opnast í nýjum glugga. Hægt er að raða efni töflunnar með því að smella á fyrirsagnir.
Nánari upplýsingar í síma 569 8900 eða fyrirspurn á netfangið á fsr@fsr.is
| Titill | Útgefandi | Gefið út |
|---|---|---|
| Númerakerfi fyrir verklýsingar Númerakerfið er staðall sem FSR fer fram á að hönnuðir noti við gerð verklýsinga. | FSR | September 2006 |
| Leiðbeiningar til hönnuða Leiðbeiningarnar sýna hvernig útboðsgögnum er raðað í möppur áður en þau eru sett á geisladisk í lok áætlunargerðar, eins og FSR fer fram á að hönnuðir geri. | FSR | September 2004 |
| Leiðbeinandi tegundaskrá Inngangur 10. kafla verklýsingar sem FSR fer fram á að hönnuðir setji í verklýsingu sína ef þeir vilja nefna tegundir. Hvergi má hafa tegundarheiti í verklýsingum annars staðar en í þessum kafla. | FSR | September 2005 |
| Dæmi um tilboðsskrá Skjalið er opið Excel skjal, sem hönnuðir geta sótt hér, með formúlum sem margfalda saman magn og einingarverð og leggja saman hvern kafla fyrir sig og færa niðurstöðutölu hvers kafla sjálfvirkt yfir á tilboðsblaðið. Hreinsið út tölur í skjalinu sem eru dæmi. Athugið að læsa skal öllu skjalinu fyrir breytingum nema dálki sem inniheldur einingarverð. Bjóðendur geta fyllt allt tilboðsblaðið út í tölvunni, að undanskilinni undirskrift, áður en það er prentað út. | FSR | Janúar 2005 |