Samtök opinberra verkkaupa
Samtök opinberra verkkkaupa - SOV
Þann 1. desember 2006 var haldinn stofnfundur Samtaka opinberra verkkaupa sem verður samstarfsvettvangur opinberra aðila á Íslandi sem stunda kaup á verkum og þjónustu þeim tengdum. Aðild að samtökunum geta átt ríkisstofnanir og sveitarfélög. Stofnaðilar SOV (Samtaka opinberra verkkaupa), Framkvæmdasýslan, Framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar, Siglingastofnun og Vegagerðin.
Tilgangur Samtaka opinberra verkkaupa er:
- Að vera samtök opinberra aðila á Íslandi, sem stunda kaup á verkum og þjónustu þeim tengdum.
- Að beita sér fyrir aukinni gæðavitund við mannvirkjagerð á Íslandi og innleiðingu gæðastjórnunar við verklegar framkvæmdir.
- Að leggja áherslu á öryggis- heilbrigðis- og umhverfismál sem tengjast verklegum framkvæmdum.
- Að vera leiðandi í samræmingu og þróun aðferða og gagna sem tengjast útboðum á verklegum framkvæmdum og þjónustu þeim tengdum.
- Að taka þátt í innlendu og alþjóðlegu samstarfi er snýr að stöðlun, hagræðingu og þróun í mannvirkjagerð.
- Að stuðla að ráðstefnum á sviði mannvirkjagerðar sem taka á gæðavitund, öryggi, heilbrigði, umhverfi og samræmingu útboðsgagna í verklegum framkvæmdum.
Fyrstu stjórn samtakanna skipa Óskar Valdimarsson FSR, Guðmundur Pálmi Kristinsson Framkvæmdasviði Reykjavíkurborgar og Rögnvaldur Gunnarsson Vegagerðinni.
Áhersluatriði Samtaka opinberra verkkaupa eru einkum eftirfarandi:
- Kaup á verkum og þjónustu
- Innleiðing gæðastjórnunar
- Öryggis-, heilbrigðis- og umhverfismál
- Þróun aðferða og gagna í útboðum
- Stöðlun, hagræðing og þróun í mannvirkjagerð
- Ráðstefnur á ofangreindum sviðum