Atburðir Norræns samstarfs um ríkisbyggingar


Fundir með NKS (Nordisk kontakt for statsbygninger), samstarfaðila FSR


Fundur NKS í Reykjavík 2010

Fundir NKS voru haldnir á Íslandi 24. - 25. ágúst 2010. Það var annars vegar forstjórafundur, þeir eru haldnir annað hvert ár, sem haldinn var var á Siglufirði og veitti Sigurður Hlöðversson starfsmaður FSR á Sigufirði þar liðveislu. Hins vegar var þessa daga einnig fundur NKS Starfshóps um menningararf  (NKS Kultur) í Reykjavík. Á dagskrá menningarararfs hópsins var meðal annars yfirlitstafla yfir starfsemi stofnananna í málaflokki hópsins. Eins og alltaf fylgir NKS fundunum að farið er í skoðunarferðir og litið á áhugaverðar byggingar. Meðfylgjandi mynd er af þátttakendum í starfshópnum þegar þeir komu við í Þrastarlundi.

Norrænn samstarfshópur um menningararf í ríkisbyggingum


Fundur NKS í Helsinki 2009

Fundur NKS menningarsamstarfs í Helsinki í Finnlandi 12.-13. nóvember 2009. Á dagskránni var meðal annars hvað hefði áunnist á fundum menningarsamstarfs NKS. Einnig vaar rætt um skipulagsmál og um orkunýtingu. Ákveðið var að stefna að því að næsti fundur NKS menningarsamstarfs verði í lok apríl 2010. Þátttaka fyrir FSR á símafundi: LK.


Fundur NKS í Kronborg 2009

Ráðstefna NKS í Kronborg kastala í Elsinore í Danmörku 31. ágúst - 2. september 2009. Á fundinum var meðal annars rætt um orkunýtingu og minnkun umhverfisáhrifa, aðferðir til orkusparnaðar í skrifstofuhúsum og friðuðum byggingum. Einnig var rætt um viðhald bygginga með varðveislugildi. Að lokum var á dagskránni áhættustjórnun og BIM (Building Information Model). Þátttaka fyrir FSR: BE, HI, LK, ÓV og ÞJ.


Fundur NKS í Kaupmannahöfn 2009

Fundur NKS menningarsamstarfs var haldinn í Kaupmannahöfn 4.-5. maí 2009. Þemað var meðal annars viðhald fasteigna hjá SES (Slots- og Ejendomsstyrelsen í Danmörku). Rætt var um mismunandi fjármögnun við viðhald merkra bygginga og samnaburður á aðferðum Norðurlandanna við það. Þátttaka fyrir FSR: LK.


Fundur NKS í 2008

Fundur NKS var haldinn í Osló 26. - 27. mars 2008. Á fundinum var fjallað um BIM (Buidling Information Model), rekstrarferli og handbók.


Fundur NKS í Helsinki 2008

Fundur NKS var haldinn í Helsinki 8. febrúar 2008. Á fundinum var fjallað um áhættustjórnun (NKS Risk Manangement Workshop). Farið var í gegnum niðurstöður fundar í Marstrand. Einnig var rætt um það sem er efst á baugi í samstarfsmálum NKS.


Fundur NKS í Kronborg í Danmörku 2007

Fundur NKS menningarsamstarfsins (NKS Kulturnettet) í Kronborg kastala í Danmörku 25. - 26. október 2007. Á dagskrá voru sérstaklega byggingararfurinn og þá sérstaklega að gæða  byggingararfinn lífi, það er breytingar í byggingunum til að auka nýtingu og hagkvæmni þeirra, opna þær almenningi og þess háttar.


Fundur NKS í Marstrand í Svíþjóð 2007

Fundur NKS undir heitinu Áhættustjórnun var haldinn í Marstrand í Svíþjóð var haldinn dagana 21.-22. ágúst 2007.

Á fundi NKS í ágúst 2007 var fjallað um aðferðafræði Building Information Model (BIM) og lýstu fulltrúar stofnana í NKS stöðu BIM mála hver í sínu landi og er hér stuttlega rakið það sem þar kom fram.


  • Danmörk
    Þróun útfærslu á BIM í Danmörku er á ábyrgð samtaka sem nefnast bips og átakið nefnist „Det digitale byggeri“. Það tekur á samstarfi á sviði skjalastjórnunar, rafrænna útboða og byggingarupplýsingalíkana. Í auknum mæli verður tekið mið af viðmiðunum alþjóðasamtaka, svo sem ISO, IAI og IFC. Innleiðing BIM í Danmörku áætluð að verði þrepum. Árið 2007 voru lagðar til leiðbeiningar um þrívíddarlíkön sem innihalda meðal annars árekstrargát. Árið 2008 koma leiðbeiningar með auknum gögnum varðandi notkun rýmis og tímasetningar. Þá verður árið 2009 bætt við leiðbeiningum sem beinast að samstarfi og aðgangsstjórnun, árið 2010 flokkun og magnskrá, árið 2011 vörulýsingar og 2012 framleiðslulýsingar.

  • Finnland
    Leiðbeiningar um BIM samkvæmt kröfum Senatti í Finnlandi (BIM manual) tók gildi í október 2007. Þá hafði staðan verið metin þannig að BIM tæknin væri orðin nægilega þróuð til að gera kröfu um að nota hana í venjulegum verkefnum þegar kostnaður er yfir 2 milljónir evra. Útfærslan er ítarleg og uppfyllir IFC staðalinn. Um er að ræða fyrsta skrefið á leið til mun víðtækari notkunar líkana.

  • Noregur
    Statsbygg hefur sett fram áætlun og kröfur um notkun BIM og á árinu 2007 voru að minnsta kosti fimm verkefni unnin þar sem BIM verður notað. Markmið Statsbygg er að BIM verði almennt notað við hönnun og framkvæmd bygginga árið 2010. Í fyrsta skrefi innleiðingar verður áherslan á notkun BIM líkans við hönnun og innri vinnu hönnunarhópa fremur en við framkvæmd og rekstur bygginga, einnig verða breyttar kröfur um útboðsgögn og verksamninga. Aukning á sjónrænum möguleikum með BIM.

  • Ísland
    Á Íslandi hefur FSR, í samstarfi við ýmsa aðila, hafið kynningu á BIM aðferðafræðinni, en ákvörðun um innleiðingu liggur ekki fyrir né áætlun varðandi BIM á borð við þær sem lýst er hér að framan. Tölvustudd hönnun er útbreidd hérlendis og að mörgu leyti eru forsendur fyrir þróun í átt að BIM. FSR hefur lagt til við hagsmunaaðila að BIM aðferðafræðin verði sú leið sem farin verður. Ýmis þróun hefur átt sér stað sem mun nýtast við innleiðingu BIM. Sem dæmi má nefna þróun hönnunarsamninga, þar sem meðal annars er gerð er krafa um að einungis hönnunarhópar taki þátt. Áhrif aðferðafræði BIM gætir víðar. Nokkrir hönnuðir eru að gera prófanir á því en engin stofa hefur enn tekið almennt upp BIM vinnuaðferðir. Ákveðið hefur verið, í stóru verkefni Nýs háskólasjúkrahúss, að taka til fulls upp svokallaða bips vinnustaðla og aðferðafræði sem nær til tölvustuddrar þrívíddarhönnunar, skjölunar og verklýsinga. Markviss vinna, í samstarfi hagsmunaðila, við mótun á útfærslum á BIM sem henta á Íslandi þyrfti að komast á meira skrið og mun FSR beita sér fyrir því á komandi árum.

Fundur NKS í Stokkhólmi 2007

Fundur NKS um menningartengd málefni í tengslum við ríkisbyggingar var haldinn í Stokkhólmi dagana 11. -12. júní 2007.


Ráðstefna NKS í Stokkhólmi 2005

Á ráðstefnu NKS í Stokkhólmi 3. - 4. október 2005 var þemað Aðgengi og menningararfur í norrænu menningar- og byggingarumhverfi. Gestgjafi ráðstefnunnar að þessu sinni var er Statens fastighetsverk í Svíþjóð Það er mikil ögrun fólgin í því að breytingar, sem gerðar eru á menningarsögulegum byggingum og umhverfi, séu gerðar af næmleika og kunnáttu. Inn í misgamalt umhverfi og byggingar þarf að bæta inn tækni og starfsemi sem hæfir nútímanum, án þess að hið upprunalega beri skaða af. Að ætla á sama tíma að varðveita og breyta er verkefni sem krefst sérstakra hæfileika, sköpunarkrafts og varfærni. Ráðstefnunni var ætlað að koma á framfæri hugmyndum og lausnum, lýsa þróun og reynslu og stuðla að framtíðarsýn um samfélag sem er á öllum sviðum aðgengilegt fyrir alla.


Fundur NKS í Reykjavík 2005

Fundur aðila NKS var haldinn dagana 17.- 19. ágúst 2005 í Reykjavík. Á dagskrá fundarins voru helstu dagskráliðir eftirfarandi. Á komudegi, 17. ágúst 2005, skoðuðu gestirnir Bláa lónið og á18. ágúst hófst fundur kl. 9 þar sem aðilar NKS kynntu þróun og nýjustu áherslur hjá hverri stofnun fyrir sig og í framhaldi af því viðfangsefnið áhættustjórnun og aðferðum sem beitt er þegar tekist er á við það. Hádegisverður var í matstofu þjónustuskála Alþingis og á eftir var húsið skoðað og síðan heimsótt Þjóðminjasafnið og loks farið út í Viðey og snætt í Viðeyjarstofu, allt í leiðsögn viðkomandi arkitekta.  Á föstudegi 19. ágúst hófst fundur kl. 8:30 í einni af byggingum Alþingis, við Austurstræti 8-10, þar sem miðlað var af þekkingu um menningararfinn og í því sambandi tengsl milli stofnana okkar og ráðuneyta í hverju landi fyrir sig. Komið var inn á áætlunargerð og stjórnun, umfang og lykilstærðir. Framkvæmdir og viðhaldsverkefni þar með talin tilboðsgerð og samstarf svo og væntingar aðila. Þá var komið inn á tölvustudda hönnun, rekstur og viðhald húsnæðis, almenna notkun tölvuteikninga og fleira. Stjórn NKS og sænsku fulltrúarnir fóru yfir áætlaða dagskrá á næsta fundi sem fyrirhugaður er í Stokkhólmi og í lokin var almenn umræða.




Aðalvalmynd


Hjálparval


Fótur

Borgartúni 7A - 105 Reykjavík - Sími 569 8900 - Bréfsimi 569 8901


Leit

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi