Ráðstefnur


01. mars 2010

Niðurstöður forvals vegna nýs Landspítala

Á fundi verkefnisstjórnar nýs Landspítala 22. febrúar 2010 voru kynntar niðurstöður forvals vegna nýs Landspítala. Fimm stigahæstu teymin voru kynnt en ábyrgðaraðilar þeirra eru Mannvit hf., Almenna verkfræðistofan hf., TBL arkitektar ehf., Verkís hf. og Efla hf.

Nánar

25. febrúar 2010

Arkitektar á teiknistofunni Yrki kynna verk sín

Arkitektar á teiknistofunni Yrki, þær Sólveig Berg og Ásdís Helga Ágústsdóttir, sýna og segja frá helstu verkefnum sínum í dagskrá á vegum byggingarlistardeildar Listasafns Reykjavíkur fimmtudaginn 25. febrúar 2010 klukkan 20.

Nánar

12. febrúar 2010

Steinsteypudagurinn 2010

Steinsteypudagurinn 2010, árleg ráðstefna Steinsteypufélags Íslands, verður haldinn föstudaginn 19. febrúar 2010 á Grand hóteli, með áhugaverðri dagskrá.

Nánar

09. febrúar 2010

Kynning á Tækniþróunarsjóði fyrir hönnun og arkitektúr

Tækniþróunarsjóður fyrir hönnun og arkitektúr verður kynntur með fyrirlestri í Hafnarhúsinu fimmtudaginn 11. febrúar 2010 klukkan 20.

Nánar

04. febrúar 2010

Reynslan af BIM á Íslandi

Kynningarfundur undir heitinu Reynsla af BIM (Building Informantion Modeling) á Íslandi. Staðan í dag og hvert við stefnum, verður haldinn í Orkuveitunni, Bæjarhálsi 1, þann 11. febrúar 2010 klukkan 13.00 -16.00.

Nánar

28. janúar 2010

Stofnfundur Vistvænnar byggðar

Kynningar- og stofnfundur Vistvænnar byggðar – Vettvangs um sjálfbæra þróun í mannvirkjagerð verður haldinn þriðjudaginn 23. febrúar 2010 klukkan 15 í húsi Orkuveitu Reykjavíkur að Bæjarhálsi 1.

Nánar

28. janúar 2010

Nýjar námsbrautir á sviði mannvirkjagerðar

Kynningarfundur á Framkvæmdaferli mannvirkjagerðar og Matsfræði, námsbrautum Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands (EHÍ) verður haldinn fimmtudaginn 14. janúar klukkan 12.00 að Engjateigi 9.

Nánar

22. janúar 2010

Námskeið um garðhönnun og garðyrkju

Tímaritið Sumarhúsið og garðurinn, sem heldur námskeið um arkitektúr, skipulag, garðhönnun og garðyrkju, hefur kynnt námskeið á vorönn 2010.

Nánar

14. janúar 2010

Vistvæn þróun, kynning faghóps FSR hjá Stjórnvísi

Fundurinn Vistvænar byggingar er haldinn 14. janúar 2010 klukkan 8.15 - 9.30 í Borgartúni 7A, 4. hæð (í mötuneytinu).

Nánar

12. janúar 2010

Fyrirlestur um verk Högnu Sigurðardóttur arkitekts. Athugið: Haldinn aftur 6. febrúar 2010 klukkan 14.00.

Fyrirlestur um verk Högnu Sigurðardóttur arkitekts verður haldinn 12. janúar 2010 klukkan 20.00 á Kjarvalsstöðum. ATHUGIÐ: Vegna mikillar aðsóknar verður fyrirlesturinn endurtekinn laugardaginn 6. febrúar 2010 klukkan 14.00. Leiðsögn um sýninguna er einnig endurtekin og fer fram föstudaginn 5. febrúar klukkan 12.00 - 13.00.

Nánar

Aðgengisvottun

Aðgengisvottun Forgangur 1 og 2



Aðalvalmynd


Aukaval


Aukaval

Borgartúni 7A - 105 Reykjavík - Sími 569 8900 - Bréfsimi 569 8901


Leit

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi