Fréttir
Frá vígslu kennslu- og fyrirlestrarýmis Háskólans á Akureyri
Vígsla nýbygginga Háskólans á Akureyri, með kennslu- og fyrirlestrasölum, fór fram laugardaginn 28. ágúst 2010 við hátíðlega athöfn. Háskólinn bauð alla gesti velkomna og meðal þeirra sem heiðruðu samkomuna og fluttu ávarp voru Herra Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands og Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra. Að lokinni vígsluathöfn var opið hús í nýja húsnæðinu með lifandi tónlist, veitingum, kynningu á starfsemi háskólans og skemmtun fyrir börnin.
Athugið að hér fyrir neðan er tengill á áhugaverða myndasýningu frá vígslunni.
Um feril verkefnisins er fjallað á verkefniskynningu FSR.
Myndasýning