Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ - Samkeppniskynning


Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ, auglýst hönnunarsamkeppni

Frétt á vef FSR 8. janúar 2010

Hönnunarsamkeppni um Framhaldsskólann í Mosfellsbæ í gangi

Samkeppni um hönnun Framhaldsskólans í Mosfellsbæ var boðin út í nóvember 2009 og hafa samkeppnisgögn verið afhent á geisladiski hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7C. Skilafrestur er til 10. mars 2010. Margir hafa aflað sér gagna en ráðrúm er enn til að afla sér gagna og taka þátt.

Fjallað hefur verið um samkeppnina á vef FSR og eins og fram hefur komið verður nýja byggingin í miðbæ Mosfellsbæjar, við Háholt. Fyrsta áfangi verður um 4.000 fermetrar og rúmar fjögur- til fimmhundruð nemendur. Áætlað er að nýtt húsnæði Framhaldsskólans í Mosfellsbæ verði tekið í notkun 2012-2013.

Samkeppniskynning FSR

Nánar verður gerð grein fyrir niðurstöðum hönnunarsamkeppninnar á vef FSR þegar úrslit liggja fyrir, vorið 2010.

 

 

Athugasemd vegna ábendingar Ríkiskaupa í desember 2009:

Þátttakendur í hönnunarsamkeppni um Framhaldsskólann í Mosfellsbæ eru beðnir að hafa í huga að fyrirspurnir og svör við þeim og aðrar viðbótarupplýsingar á samkeppnistímanum birtast ekki á vef FSR heldur einvörðungu á vef Ríkiskaupa http://www.rikiskaup.is

 

 

Frétt á Vef FSR 28. nóvember 2009:

Hönnunarsamkeppnin boðin út


Samkeppni um hönnun Framhaldsskólans í Mosfellsbæ var boðin út um helgina og eru samkeppnisgögn afhent á geisladiski hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7C. Skilafrestur er til 10. mars 2010.


Auglýsing


Nýja byggingin verður í miðbæ Mosfellsbæjar, við Háholt. Fyrsta áfangi verður um 4.000 fermetrar og rúmar fjögur- til fimmhundruð nemendur. Við hönnun hússins verður lögð áhersla á sveigjanleika og möguleika til nýbreytni. Framhaldskólinn kennir sig við auðlindir og umhverfi í víðum skilningi, það er auðlindir í náttúrunni sem og mannauð með áherslu á lýðheilsu og menningarlegar auðlindir. Stefnt er að því að skólinn verði með áfangasniði. Meðal nýjunga eru rými með klösum fyrir hópstarf nemenda. Í boði verður bóknám,  nám í verknáms- og handverksgreinum svo og listgreinum. Í rýmisáætluninni er gert ráð fyrir um 1.900 fermetra kennslurými, 400 fermetra stjórnunarrými og um 500 fermetra önnur rými, samtals 2.800 fermetra nettó eða um 4.000 fermetrar brúttó. Gert ráð fyrir möguleikum til verulegrar stækkunar skólans á lóðinni í framtíðinni.

Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ hóf kennslu haustið 2009 í Brúarlandi í bráðabirgðahúsnæði og var einn árgangur í haust og gert er ráð fyrir að bæta við öðrum næsta haust. Áætlað er að nýtt húsnæði Framhaldsskólans í Mosfellsbæ verði tekið í notkun 2012-2013.

Nánar verður gerð grein fyrir hönnunarsamkeppni á vef FSR þegar úrslit liggja fyrir, vorið 2010.

 


 

Auglýsing 21. nóvember 2009:


Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ. Hönnunarsamkeppni

Útboðsnúmer: 14734     Verkefnisnúmer:  633 0034    Dagsetning opnunar: 10. mars 2010.

Framkvæmdasýsla ríkisins, fyrir hönd mennta- og menningarmálaráðuneytisins og Mosfellsbæjar, býður til opinnar hönnunarsamkeppni (framkvæmdasamkeppni) um Framhaldsskólann í Mosfellsbæ. Um er að ræða um það bil 4.000 fermetra byggingu sem staðsett verður í miðbæ Mosfellsbæjar, nánar tiltekið við Háholt.

Tvö fyrirspurnartímabil eru í samkeppninni og lýkur því fyrra 13. janúar 2010. Skilafrestur tillagna er 10. mars 2010 fyrir klukkan 16.00 hjá Ríkiskaupum. Veitt verða þrenn verðlaun að heildarupphæð 8 milljónir króna.

Samkeppnin fer fram í samvinnu við Arkitektafélag Íslands og er auglýst á EES. Nánari upplýsingar er að finna í samkeppnislýsingu sem verður aðgengileg á vef Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is,  útboðsnúmer 14734. Samkeppnislýsing og ítargögn verða fáanleg á geisladiski þriðjudaginn 24. nóvember 2009, gegn framvísun staðfestingar á þátttöku og 3.500 króna greiðslu hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7C, 105 Reykjavík. Skrifstofan er opin virka daga frá klukkan 8.00 – 16.00.

Vakin er athygli á að til að fá ítargögn afhent hjá Ríkiskaupum þarf að framvísa staðfestingu á þátttöku. Þegar viðkomandi skráir sig á vef Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is útboðsnúmer 14734,  fær hann/hún senda staðfestingu á þátttöku í tölvupósti sem skal framvísa þegar gögn eru sótt.



Aðalvalmynd


Aukaval


Aukaval

Borgartúni 7A - 105 Reykjavík - Sími 569 8900 - Bréfsimi 569 8901


Leit

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi