Á döfinni
Frá vígslu kennslu- og fyrirlestrarýmis Háskólans á Akureyri
Vígsla nýbygginga Háskólans á Akureyri, með kennslu- og fyrirlestrasölum, fór fram laugardaginn 28. ágúst 2010 við hátíðlega athöfn. Háskólinn bauð alla gesti velkomna og meðal þeirra sem heiðruðu samkomuna og fluttu ávarp voru Herra Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands og Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra. Að lokinni vígsluathöfn var opið hús í nýja húsnæðinu með lifandi tónlist, veitingum, kynningu á sterfsemi háskólans og skemmtun fyrir börnin.
Athugið að hér fyrir neðan er tengill á áhugaverða myndasýningu frá vígslunni.
Um feril verkefnisins er fjallað á verkefniskynningu FSR.
Vígsla nýbyggingar Háskólans á Akureyri
Nýbygging Háskólans á Akureyri, með kennslu- og fyrirlestrasölum, verður vígð laugardaginn 28. ágúst 2010 við hátíðlega athöfn klukkan 13.30 – 14.30. Háskólinn býður alla gesti velkomna og meðal þeirra sem heiðra samkomuna og flytja ávarp eru Herra Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands og Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra. Að lokinni vígsluathöfn verður opið hús í nýja húsnæðinu þar sem verður lifandi tónlist, veitingar og fjölbreytt skemmtidagská tileinkuð börnum.
Uppbygging Háskólans á Akureyri hófst fyrir nærri aldarfjórðungi og er nýbyggingin 4. áfangi og markar tímamót þar sem öll kennsla og rannsóknir við þekkingarsamfélag Háskólans á Akureyri mun nú fara fram á Sólborgarsvæðinu. Nýbyggingin, eða byggingarnar, eru samtals um 2.400 fermetrar að stærð. Þar eru fyrirlestrasalir og hátíðarsalur og milli þeirra forsalur. Fyrirlestrasalirnir eru búnir öflugum tæknibúnaði sem bæta meðal annars aðstöðu til fjarnáms. Hátíðasalurinn tekur allt að 500 manns í sæti. Forsalurinn er mikilvæg miðstöð fyrir háskólalífið, þar verða upplýsingaskjáir, setrými og aðstaða til ýmissa uppákoma. Húsnæðið er allt hið glæsilegasta en við hönnun þess var lögð áhersla á léttleika, birtu og tengsl rýma.
Verkkaupi er Háskólinn á Akureyri fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið. Umsjón með framkvæmdum hefur Framkvæmdasýsla ríkisins, verkefnastjóri hjá FSR er Sigurður Hlöðversson. Arkitekt er Gláma-Kím Arkitektar Laugavegi 164 ehf., Almenna verkfræðistofan hf. vann burðarþols- og lagnahönnun, Raftákn ehf. hannaði raflagnir. Verktaki er Tréverk hf.
Á verkefniskynningu FSR er nánar fjallað um verkefnið.
Lokið endurbótum á lögreglustöð á Höfn í Hofnafirði
Framkvæmdum við endurbætur og viðbyggingu við lögreglustöðina á Höfn í Hornafirði er lokið en þær hófust í júlí 2009. Um er að ræða nýja lögreglustöð með nýbyggingu og endurinnréttingu á 1. hæð í núverandi byggingu sýslumannsembættisins á Höfn. Samtals eru byggðir og endurinnréttaðir tæpir 400 fermetrar húsnæðis.
Verkkaupi er dómsmála- og mannréttindaráðuneytið. Umsjón hefur FSR, verkefnastjóri er Guðbjartur Á. Ólafsson hjá FSR, í sumarafleysingum Björn Hallgrímsson, sem annast eftirlit fyrir FSR. Arkitektar eru Á stofunni - arkitektar, hönnuður burðarþols, lagna og raflagna er Verkfræðiþjónustan ehf. Verktaki er Eykt ehf.
Á verkefniskynningu FSR er fjallað nánar um verkefnið í máli og myndum.